Úkraínskir hermenn á vígvellinum. Mynd:Úkraínska varnarmálaráðuneytið/Twitter
Frá byrjun mánaðarins hafa úkraínskar hersveitir hert árásir sínar á rússnesk landsvæði töluvert. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem rússneska öryggislögreglan FSB sendi frá sér í gær.
CNN segir að í tilkynningunni komi fram að síðustu vikuna hafi rúmlega 100 árásir verið gerðar með flugskeytum, stórskotaliðsbyssum, sprengjuvörpum og drónum á 32 byggðir í Bryansk-, Kursk- og Belgorod-héruðunum.