fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fréttir

Viðkvæmt mál á Vestfjörðum – Ákærður fyrir að kaupa nektarmyndir af mjög ungum stúlkum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 2. febrúar 2022 16:00

Samsett mynd. Héraðsdómur Vestfjarða og frá Ísafirði.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viðkvæmt kynferðisbrotamál verður tekið fyrir í Héraðsdómi Vestfjarða þann 28. febrúar næstkomandi. Málið er það viðkvæmt að þinghald verður lokað og DV hefur ekki fengið afhenta ákæru í málinu.

En samkvæmt heimildum DV snýst málið um brot manns sem er undir tvítugu sem mun hafa keypt í stórum stíl nektarmyndir af stúlkum sem eru nokkrum árum yngri en hann. DV er ekki ljóst nákvæmlega hvað hin meintu brot eru mörg en stúlkurnar sem í hlut eiga munu nálgast einn tug. Sú yngsta er 13 ára en þær eru flestar 15 ára. Pilturinn er nokkuð eldri, en þó undir tvítugu eins og fyrr segir. Samkvæmt upplýsingum DV var pilturinn nýorðinn 18 ára þegar hann framdi brotin.

Ákærandi í málinu er Lögreglustjórinn á Vestfjörðum og sendi DV fyrirspurn um málið til lögreglustjórans, Karls Inga Vilbergssonar.

Hann segir málið vissulega viðkæmt og þinghald verði fyrir luktum dyrum. „Ákærða, sem er ungur að árum, er gefið að sök brot gegn 1. mgr. 210. gr. a. almennra hegningarlaga með því að hafa í febrúar 2021 aflað sér og/eða reynt að afla sér kynferðislegra mynda af ungum stúlkum gegn greiðslu.  Ég held að ég geti ekki upplýst neitt frekar um málið,“ segir Karl.

Aðalmeðferð í málinu verður að líkindum í marsmánuði.

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Eyþór vill hleypa sjálfkeyrandi bílum inn á akreinar Borgarlínu

Eyþór vill hleypa sjálfkeyrandi bílum inn á akreinar Borgarlínu
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Karen vill að sveitarfélög steinhætti þessu á sumrin – „Trylltasta meðferð á skattfé sem hægt er að hugsa sér“

Karen vill að sveitarfélög steinhætti þessu á sumrin – „Trylltasta meðferð á skattfé sem hægt er að hugsa sér“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sorpþjónusta hefur hækkað um 104% að raun­virði frá 2008 – Reykvíkingar borga mest og eru óánægðastir með sorphirðu

Sorpþjónusta hefur hækkað um 104% að raun­virði frá 2008 – Reykvíkingar borga mest og eru óánægðastir með sorphirðu
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Þröstur er með nýrnabilun á lokastigi – Óskar eftir aðstoð til að halda reisn og sjálfstæði „síðustu ár ævi minnar“

Þröstur er með nýrnabilun á lokastigi – Óskar eftir aðstoð til að halda reisn og sjálfstæði „síðustu ár ævi minnar“