
Eins og alþjóð veit töpuðu Danir fyrir Frökkum í milliriðli EM í handbolta þann 26. janúar síðastliðinn. Fjölmargir Íslendingar voru afar ósáttir með þá niðurstöðu þar sem Ísland hefði komist áfram í undanúrslit með sigri Dana í leiknum.
Viðbrögð þjóðarinnar við úrslitum leiksins voru misjöfn. Fjölmargir hraunuðu yfir danska landsliðið og töldu að kapparnir hefðu tapað viljandi svo Ísland kæmist ekki áfram. „Hvernig er hægt að vera svona ömurleg og ógeðsleg þjóð eins Danmörk bara í alvöru,“ sagði til að mynda einn netverji eftir leikinn og fjölmargir tóku í svipaða strengi.
Þá ákváðu nokkur fyrirtæki að hoppa á danska hatursvagninn í kjölfarið, Hagkaup frestaði til dæmis Dönskum dögum. „Í ljósi aðstæðna teljum við að landinn sé ekki alveg tilbúinn í Danska daga svo við höfum ákveðið að fresta þeim um óákveðin tíma,“ sagði í tilkynningu sem Hagkaup birti á Facebook-síðu sinni daginn eftir leikinn.
Veitingastaðurinn Jómfrúin tók einnig til sinna ráða og ákvað að bjóða gestum sínum upp á danskan drykk eftir úrslitin. „Unskyld Island!“ sagði í færslu sem birt var á Facebook-síðu Jómfrúnnar. „Fyrir hönd dönsku krúnunnar býður Jómfrúin matargestum uppá einn danskan drykk að eigin vali í hádeginu á morgun, fimmtudag. Svona rétt til þess að róa taugarnar…“
Þá tilkynnti veitingastaðurinn Sport og Grill í Smáralind að hið hefðbundna Happy Hour yrði með breyttu sniði vegna niðurstöðunnar. „Af gefnu tilefni verða Carlsberg og Tuborg EKKI á Happy Hour hjá okkur fimmtudag og föstudag,“ sögðu forsvarsmenn veitingastaðarins í tilkynningu á Facebook.
Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, gekk svo skrefinu lengra en flestir geta gert en hann útbjó tillögu til þingsályktunar þess efnis að danska kórónan yrði fjarlægð af Alþingishúsinu við Austurvöll.
Þessi öfgakenndu viðbrögð fólks, verslana og veitingastaða vöktu misjöfn viðbrögð. Flestir virtust hafa haft gaman að þessu gríni en þó blöskraði mörgum að verið væri að taka slíka afstöðu gegn Dönum.
Það er þó einn maður sem virðist hafa verið sérstaklega óánægður með þessi viðbrögð Íslendinga við tapi Dana, það er hann Þórður Ásgeirsson. Þrátt fyrir að um vika sé liðin síðan Ísland komst ekki áfram þá er Þórður ennþá ósáttur með viðbrögð Íslendinga við tapinu.
Þórður skrifaði nefnilega grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag, þann 2. febrúar, en hann beinir greininni stil Pírata, Hagkaups, Jómfrúarinnar og fleiri aðila. Greinin er afar stutt, einungis ein setning, en í henni segir Þórður allt sem hann þarf að segja um málið. Hann segir viðbrögðin við tapi Dana hafa orðið til þess að hann skammist sín fyrir að vera Íslendingur.
Greinina í heild sinni má lesa hér fyrir neðan:
„Viðbrögð ykkar við því að Frakkar sigruðu Dani í hörkuhandboltaleik hafa orðið til þess að ég dauðskammast mín fyrir að vera sauðheimskur Íslendingur.“