Margar af helstu útvarpsstöðvum landsins hafa skrúfað fyrir spilun á tónlist listamannsins Auðuns Lútherssonar, Auðs, eftir að ásakanir á hendur honum um kynferðisbrot tóku að hrannast upp á samfélagsmiðlum og mál hans komust í hámæli í fjölmiðlum í kjölfar þess að Þjóðleikhúsið sagði honum upp verkefni.
Sjálfur viðurkenndi Auður í yfirlýsingu að hafa farið yfir mörk stúlku. Hann sagðist ætla að draga sig í hlé frá tónlistarsviðinu og leita sálfræðihjálpar. Auður lýsti hins vegar megninu af ásökunum á hendur sér sem flökkusögum.
Þó að margir hafi gagnrýnt Auð harðlega undanfarið er ljóst að skiptar skoðanir eru um mál hans. Það vakti athygli blaðamanna DV að í umræðum á Facebook undir frétt frá DV um Auð virtist mikill meirihluti netverja vera á bandi hans, af alls 71 innleggi undir fréttinni.
Fólk hefur helst sett fyrir sig að ásakanir gegn Auði séu óljósar og engar kærur hafi komið fram. Á því stigi mála sé fullfljótt að setja hann í spilunarbann. Mörgum misbýður þetta. Rétt er hins vegar að árétta að fjölmargir hafa fordæmt meint framferði tónlistarmannsins og yfirlýsing hans í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um mál hans þótti mörgum vera lítilfjörleg.
DV setti könnun í loftið í morgun með svohljóðandi spurningu: Er það rétt af útvarpsstöðvum landsins að taka Auð úr spilun?
Könnunin er ekki vísindaleg en engu að síður má líta á niðurstöðuna sem einhvers konar vísbendingu, að minnsta kosti um að skoðanir eru skiptar. Er skemmst frá því að segja að töluverður meirihluti er andsnúinn spilunarbanninu.
Kl. 21 í kvöld höfðu ríflega fimm þúsund atkvæði verið greidd. Tæplega 1.500 eru hlynnt banninu, eða 25%, en tæplega 3.800 eða um 63% eru andvíg því.