fbpx
Miðvikudagur 15.maí 2024
Fréttir

Hlé á leit við Ölfusá – Vakt við ána – Staðan verður metin klukkan sjö

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 26. febrúar 2019 05:01

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hlé var gert á leit í Ölfusá í nótt en talið er að maður hafi ekið bíl sínum út í ána um tíuleytið í gærkvöldi. Vakt er á nokkrum stöðum við ána og verður í alla nótt. Lögreglan og aðrir viðbragðsaðilar munu funda klukkan sjö til að ákveða með framhald leitarinnar.

RÚV skýrir frá þessu. Eins og DV skýrði frá í gærkvöldi sáust ummerki um að bíl hefði verið ekið út í ána auk þess sem sjónarvottar voru að því. Þá hefur brak fundist í ánni.

Rúmlega hundrað björgunarsveitarmenn, lögreglumenn, slökkviliðsmenn og starfsmenn Landhelgisgæslunnar tóku þátt í leitinni. Leitað var úr lofti með þyrlu Gæslunnar, björgunarsveitarmenn voru á bátum á ánni og árbakkar voru gengnir. Aðstæður á vettvangi voru erfiðar, myrkur, hvasst og rigning.

RÚV hefur eftir Oddi Árnasyni, yfirlögregluþjóni á Selfossi, að öllu hafi verið tjaldað til leitarinnar í nótt sem kostur var á. Leitarmenn höfðu gengið bakka Ölfusár allt til Ósa í nótt en án árangurs. Hlé var síðan gert á leitinni og fólk sett á vakt á ákveðnum stöðum við ána.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Skúli skammar Willum og Ölmu vegna sífelldra tafa á meðferð kvartana hjá embætti landlæknis

Skúli skammar Willum og Ölmu vegna sífelldra tafa á meðferð kvartana hjá embætti landlæknis
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Willum segir fylliefni stríð á hendur – Vill takmarka meðferðir til útlitsbreytinga án læknisfræðilegs tilgangs

Willum segir fylliefni stríð á hendur – Vill takmarka meðferðir til útlitsbreytinga án læknisfræðilegs tilgangs
Fréttir
Í gær

Vilborg segir að fólki sé misboðið vegna ákvörðunar Morgunblaðsins

Vilborg segir að fólki sé misboðið vegna ákvörðunar Morgunblaðsins
Fréttir
Í gær

Egill spyr hvort Íslendingar þurfi ekki að læra lexíu af Eurovision

Egill spyr hvort Íslendingar þurfi ekki að læra lexíu af Eurovision