fbpx
Miðvikudagur 01.maí 2024
Fréttir

Vilja Íslendinginn handtekinn: „Verst af öllu er að horfa upp á áhugaleysið hjá þeim“

Auður Ösp
Föstudaginn 19. apríl 2019 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Enn hefur ekkert spurst til Henrys Alejandros Jimenez, tvítugs pilts sem yfirgaf heimili sitt í  í Torrevieja í Alicante-héraði á nýársnótt eftir að hafa rifist við íslenskan meðleigjanda sinn. DV greindi frá hvarfi Henrys á dögunum. Móðir Henrys furðar sig á því að Íslendingurinn, sem bjó með Henry, hafi ekki verið handtekinn og fjölskyldan telur fullvíst að Henry hafi ekki yfirgefið íbúðina sjálfviljugur.

Árásin tilkynnt

Fram kom í frétt DV á dögunum að þrír Íslendingar koma við sögu í dularfullu mannshvarfsmáli sem upp kom á Spáni í byrjun ársins. Uppi eru getgátur um að málið tengist andláti annars þeirra. Fram kemur í spænskum miðlum að í lok seinasta árs hafi íslenskur piltur fundist látinn á sófa í íbúð sem er í sama fjölbýlishúsi og þar sem Henry býr. Fram kemur að dánarorsök piltsins hafi verið ofneysla. Umræddur piltur leigði á þeim tíma íbúð með tveimur öðrum Íslendingum. Annar þeirra flutti til Íslands eftir þetta en hinn varð eftir á Spáni. Henry flutti inn til hans eftir þennan hörmungaratburð.

Á gamlárskvöld var partí í íbúð þeirra félaga, Henrys og Íslendingsins. Samkvæmt frásögnum spænskra miðla kom til átaka á milli þeirra tveggja seint um kvöldið, sem endaði með því að Íslendingurinn réðst á Henry. Henry yfirgaf íbúðina í kjölfarið og hefur ekki sést síðan. Ítrekuð leit hefur engan árangur borið.

Fram kemur í spænskum miðlum að Guardia Civil-lögreglan hafi yfirheyrt íslenska meðleigjandann, sem og gestina sem staddir voru í íbúðinni á gamlárskvöld. Hefur Íslendingurinn staðfest að til átaka hafi komið á milli þeirra tveggja sem enduðu með því að hann réðst á Henry. Þá kemur fram að samkvæmt vitnisburði Íslendingsins var Henry „ekki í góðu ástandi“ þegar hann yfirgaf íbúðina. Fram kemur að frásagnir þeirra sem staddir voru í íbúðinni þetta kvöld séu misvísandi.

Á vef spænska miðilsins Cope kemur fram að hin meinta árás Íslendingsins hafi verið tilkynnt til lögreglu. Móðir Henrys, Gina, segir að samkvæmt vinum sonar hennar hafi árásin verið harkaleg. Furðar hún sig á því að árásarmaðurinn hafi ekki verið handtekinn. Hún segir son hennar alltaf hafa treyst fólki í blindni. „Hann er svo góðhjartaður og ákvað þess vegna að fara að búa með vini sínum, sem seinna átti eftir að ráðast á hann,“ segir hún og bætir við að sonur hennar hafi kennt í brjósti um vininn, sem hafi verið aleinn í útlöndum, þar sem hann talaði ekki tungumálið. „Ég reyndi að fá hann til að hætta við, vegna þess að ég treysti ekki þessum vini hans,“ segir Gina jafnframt. Líkt og kom fram í frétt DV á dögunum þá fannst annar Íslendingur látinn í íbúðinni á seinasta ári.

Aðstandendur að gefast upp

Spænski fréttamiðillinn Diario Información fjallar einnig um málið. Andrés Jimenez, bróðir Henrys, segir óskiljanlegt að hægt sé að koma fram með svona margar mismunandi frásagnir af því sem átti sér stað í íbúðinni þetta kvöld.

Þá bætir hann við að fjölskyldan telji augljóst að Henry hafi ekki yfirgefið íbúðina sjálfviljugur. Hann hafi hvorki verið með síma né skilríki á sér. Að sögn Andrésar var bróðir hans með stóra drauma varðandi framtíðina sem hann var afar spenntur fyrir. Hann lýsir Henry sem „harðduglegum og með hjarta úr gulli.“

Andrés segir „harmleikinn“ hafa hafist daginn sem fjölskyldan komst í kynni við „28 ára íslenskan karlmann“ sem seinna átti eftir að gerast meðleigjandi Henrys. Andrés segir að hann og Henry hafi upphaflega komist í kynni við íslenska manninn á bar þar sem þeir fóru reglulega til að horfa á fótbolta. Í kjölfarið hafi myndast vinskapur á milli þeirra sem endaði með því að Henry flutti inn.

Andrés segir jafnframt að margir af aðstandendum Henrys séu búnir að gefast upp á leitinni, þar á meðal vinir og kunningjar Henrys sem voru með honum seinustu klukkustundirnar áður en hann hvarf. Henry hefur nú verið týndur í meira en 100 daga.

„Það sem er verst af öllu er að horfa upp á áhugaleysið hjá þeim sem voru með honum þetta kvöld og töldust til vina hans.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt