

Einar Bollason, sem var hnepptur í 105 daga gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn Geirfinnsmálsins segir það hafa verið næstum vonlaust að fyrirgefa Erlu Bolladóttur systur sinni. Erla og Sævar heitinn Ciesielski bendluðu Einar og kunningja hans við málið á sínum tíma og voru þeir þá umsvifalaust handteknir.
Þetta kemur fram í viðtali við Einar sem birtist á Hringbraut í kvöld.Einar kveðst þar vona að þeir sem dæmdir voru á sínum tíma fyrir aðild að málunum fái uppreisn æru og verði hreinsaðir ásökunum, sem ef til vill og líkast til voru engar innistæður fyrir.
Hann bendir þó á að systir hans geti ekki ætlast til þess að vera hreinsuð af þeim glæp að hafa logið upp saklausa menn- enda hafi glæpur hennar haft skelfilegar afleiðingar í för með sér.
Í viðtalinu lýsir Einar jafnframt því eina skipti sem hann hefur hitt Erlu eftir að hann losnaði úr Síðumúlafangelsi, en það var við útför systur þeirra. Segir hann Erlu hafa staðið eina afsíðis og enginn hafi viljað tala við hana. Tók hann þá af skarið, gekk til systur sinnar og faðmaði hana. Segir hann faðmlagið hafa „fært hann nær fyrirgefningunni.“
Einar hefur áður tjáð sig opinberlega um einangrunarvistina, líkt og fram kemur í grein Pressunnar árið 2011.
„Maður reynir að gleyma þessu en það er ekki hægt. Að vísu deyfir tíminn þetta en svo gerist eitthvað, eins og dauði Sævars nú, þá ýfist allt upp í sálinni,“ sagði Einar en hann kvaðst jafnframt sætta sig við að lifa með þessari lífsreynslu til æviloka. „Ég hef mikið reynt en ég get ekki fyrirgefið Sævari og systur minni það sem þau gerðu mér á þessum tíma; þetta var mannorðsmorð,“ sagði Einar jafnframt. „Ég vildi óska að það væri hægt að fyrirgefa en ég get það ekki.“
„Myndir þú hafa samúð með manneskju sem lygi upp á þig þátttöku í tvöföldu morði og hefði orðið þess valdandi að þú sast 102 daga í einangrun?“ spurði Einar jafnframt í viðtali við Fréttatímann fyrr á árinu- eftir að endurupptökunefnd úrskurðaði að heimilað væri að taka upp öll dómsmál sem tengdust hvarfi og morði á Guðmundi Einarssyni og Geirfinni Einarssyni- en féllst þó ekki á að taka upp mál Erlu Bolladóttur, Kristjáns Viðars Viðarsson og Sævars Marinós Ciesielski.
„Mér fannst þetta liggja nokkuð ljóst fyrir. Hún laug upp á fjóra menn og rústaði fjölskyldulífi þeirra. Ég veit ekki af hverju niðurstaðan hefði átt að vera önnur.“
Einar tók þó jafnframt fram að væri kominn yfir hatur og reiði.
Ég er sammála þessari niðurstöðu en er þó kominn nógu langt í minni endurhæfingu til að geta óskað henni alls hins besta,“