Var fyrstur Íslendinga til að hlaupa löglegt maraþon árið 1968

Jón G. Guðlaugsson maraþonhlaupari er látinn 90 ára að aldri. Jón var fæddur 3. apríl 1926 en lést þann 4. desember á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð á Akureyri. Mbl greindi frá þessu fyrr í dag.
Jón sem gekk yfirleitt undir nafninu Jón hlaupari eða Jón skokkari var fyrstur Íslendinga til að hlaupa löglegt maraþon árið 1968. Sumarið 1975 hljóp Jón 200 sjómílur sem er um 370 km. [1] Hann lauk hlaupinu á tæpri viku en heildarhlaupatími hans var rúmlega 37 klukkustundir. Tilefni hlaupsins var útfærsla landhelginnar í 200 sjómílur.
Í upplýsingum úr afrekaskrá Frjálsíþróttasambands Íslands er til dæmis greint frá því að Jón hafi tekið þátt í yfir 30 maraþonhlaupum.
Alls tók Jón þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í 28 skipti. Enginn hefur hlaupið maraþonið jafnoft og hann.
Þá vakti sérstök hárgreiðsla Jóns mikla athygli en hárið hans var sértaklega tekið til umfjöllunar á danska fréttavefnum Dagens.dk árið 2013.
Útför Jóns fer fram 16. desember frá Höfðakapellu á Akureyri.