fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Fréttir

Lásu um milljónagreiðslu til 66°Norður í fjölmiðlum

– Félag forstjóra Sjóklæðagerðarinnar dæmt til að greiða 86 milljónir króna

Ritstjórn DV
Laugardaginn 12. mars 2016 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einkahlutafélag sem Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66°Norður, er í forsvari fyrir var í síðustu viku dæmt til að greiða sjóðastýringarfyrirtækinu Stefni, dótturfélagi Arion banka, 86 milljónir króna ásamt dráttarvöxtum. Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti þá að SÍA I, framtakssjóður í stýringu Stefnis, ætti rétt á viðbótargreiðslu vegna 327 milljóna króna leiðréttingar á gengistryggðum lánum fataframleiðandans. Starfsmenn Stefnis fréttu af leiðréttingunni í fjölmiðlum rúmu ári eftir að félag Helga keypti SÍA I út úr eigendahópi 66°Norður.

Greiddi 582 milljónir

Ágreining Stefnis og einkahlutafélagsins Hróss má rekja til kaupa samlagshlutafélagsins SF II á 51% hlut í 66°Norður (Sjóklæðagerðinni hf.) í júní 2011. Á þeim tíma átti SÍA I alls 74% hlut í SF II en Hrós hin 26%. Félögin tvö keyptu 51% í fataframleiðandanum af félaginu Egus Inc. sem var skráð á Tortóla á Bresku Jómfrúaeyjunum og í eigu Sigurjóns Sighvatssonar, fjárfestis og kvikmyndaframleiðanda. Helgi Rúnar hafði þá starfað sem forstjóri 66°Norður í fjóra mánuði. Á meðal sjóðfélaga SÍA I voru margir af stærstu lífeyrissjóðum landsins.

Samkvæmt dómi héraðsdóms urðu erfiðleikar í samstarfi eigenda SF II til þess að Hrós keypti SÍA I út úr félaginu í mars 2012. Kaupverðið nam 582 milljónum króna en 66°Norður var á þeim tíma metið á 1,5 milljarða króna. Í kaupsamningnum var ákvæði um að verðið gæti hækkað kæmi til leiðréttinga á lánssamningum fataframleiðandans. Færi svo ætti sjóður Stefnis rétt á viðbótargreiðslu sem næmi 37% af ávinningi 66°Norður, eftir að tekið væri tillit til kröfu sem Egus átti á SF II vegna samningsins í júní 2011.

Í október 2014 greindi Viðskiptablaðið frá því að 66°Norður hefði fengið 327 milljónir króna vegna leiðréttingar á ólögmætu gengistryggðu láni. Í dómi héraðsdóms segir að starfsmenn Stefnis hafi í kjölfar fréttaumfjöllunar aflað sér ársreiknings 66°Norður fyrir árið 2013 og þá uppgötvað að eigandi Hróss hefði ekki upplýst sjóðastýringarfyrirtækið um greiðsluna „þrátt fyrir að hafa mátt vera kunnugt um hana í tæpt heilt ár“.

Vildi afslátt

Krafa SÍA I fyrir héraðsdómi hljóðaði upp á 113 milljónir króna auk dráttarvaxta. Þar var einnig tekin fyrir stefna Hróss, sem héraðsdómur sýknaði SÍA I af, um að félagið ætti rétt á afslætti upp á 136 milljónir af kaupverðinu í mars 2012. Hin keyptu hlutabréf hafi verið seld með „leyndum göllum“ eins og endurákvörðun tekjuskatts að fjárhæð 211 milljóna króna sem 66°Norður þurfti síðar að greiða vegna meints ólögmæts samruna frá árinu 2005. Félagið hafi þar að auki þurft að greiða 183 milljónir vegna dómsmáls sem Halldór Gunnar Eyjólfsson, fyrrverandi forstjóri fataframleiðandans, höfðaði gegn fyrirtækinu og vann í Hæstarétti í september 2014.

Stjórnendur Stefnis höfnuðu gagnkröfunni og sögðu að forsvarsmönnum Hróss hefði átt að vera fullkunnugt um að málin tvö gætu komið upp. Helga Rúnari hafi átt að vera vel kunnugt um skattamál 66°Norður þar sem hann hafi verið forstjóri fyrirtækisins í rúmt ár þegar kaupin í mars 2012 gengu í gegn.

Óvíst með áfrýjun

Helgi Rúnar sagðist í samtali við DV ekki hafa fengið tækifæri til að ræða niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur við lögmann sinn þar sem forstjórinn væri staddur erlendis. Af þeim sökum hefði ákvörðun um hvort málinu verði áfrýjað ekki verið tekin.

Samkvæmt nýjasta ársreikningi Hróss, sem er fyrir árið 2012, var Helgi Rúnar í lok þess árs eini hluthafi félagsins. 66°Norður er samkvæmt fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra í dag alfarið í eigu BH Holding ehf. sem er aftur í eigu Hróss.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“

Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“
Fréttir
Í gær

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð

Skipulagsfræðingur vill endurskoða samgöngustefnu Reykjavíkur – Sundabraut verði hraðað og ný hverfi byggð
Fréttir
Í gær

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun
Fréttir
Í gær

Pinnahælar reyndust leigjendum dýrkeyptir

Pinnahælar reyndust leigjendum dýrkeyptir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Afkastageta Gosfélagsins verður um 70 milljónir lítra á ári

Afkastageta Gosfélagsins verður um 70 milljónir lítra á ári