fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026

Sex hlutir sem þú ættir að þrífa daglega

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 16. apríl 2019 14:30

Svokölluð skyldulesning hér á ferð.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ýmislegt á heimilinu sem dregur í sig óhreinindi og bakteríur hraðar en annað og þessa hluti ætti að þrífa mun oftar en flestir gera. Hér má sjá dæmi um nokkra hluti sem ætti að þrífa á hverju degi – en samantektin birtist áður á Huffington Post.

Anddyrið

Anddyrið á heimilinu er það fyrsta sem fólk sér þegar það gengur inn og getur haft áhrif á það hvernig þér líður heima hjá þér. Hengdu lyklana upp eða hafðu þá í körfu. Hengdu útiföt á snaga. Raðaðu skónum snyrtilega. Hristu af dyramottunni. Fyrir vikið verður þú mun afslappaðri þegar þú kemur heim.

Viskustykkin

Margir nota viskustykki til að þurrka hendurnar meðan þeir elda og þrífa og nota svo sama viskustykkið til að þurrka nýþvegna diska og glös. Þetta getur auðveldlega valdið því að bakteríur myndist í viskustykkinu og mikilvægt að þvo það reglulega á hæsta hita.

Svampana

Svampar hýsa alls kyns óæskilegar bakteríur en þær má drepa með því að hita rakan svamp í örbylgjuofni í eina mínútu, stinga honum í uppþvottavélina eða sjóða hann í fimm mínútur.

Eldhúsborð og baðinnréttingar

Eldhúsborð og baðinnréttingar safna óhreinindum fljótt og örugglega. Því er best að þurrka af þeim daglega. Gott er að þrífa vaskinn vel í leiðinni. Ekki gleyma að hengja tuskurnar upp til þerris svo þær byrji ekki að úldna.

Fjarstýringar

Fjarstýringar eru einn af þessum hlutum á heimilinu sem fæstir hafa fyrir því að þrífa en þær eru morandi í bakteríum. Það ætti að þurrka af þeim daglega og sama gildir um síma.

Botninn á hliðartöskunni

Þú leggur töskuna á gólfið á kaffihúsinu, hengir hana upp á almenningssalernum, lætur hana sitja á búðarborðinu, og skellir henni síðan upp á eldhúsborðið. Þú getur rétt ímyndað þér hverju hún hefur safnað að sér á leiðinni svo það er vel þess virði að strjúka vel af henni reglulega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Trump sagður hafa augastað á nýju landi til að gera að 51. ríki Bandaríkjanna

Trump sagður hafa augastað á nýju landi til að gera að 51. ríki Bandaríkjanna
Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Mannabein fundust á ruslahaug árið 1993 – Nú hefur lögregla loks borið kennsl á drenginn

Mannabein fundust á ruslahaug árið 1993 – Nú hefur lögregla loks borið kennsl á drenginn
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Setur allt á hliðina með djörfum myndum úr sumarfríinu

Setur allt á hliðina með djörfum myndum úr sumarfríinu
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Ótrúleg dramatík í Kópavogi – Sjálfsmark tryggði Blikum sigur í uppbótartíma

Ótrúleg dramatík í Kópavogi – Sjálfsmark tryggði Blikum sigur í uppbótartíma
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Keyrði á móti rauðu ljósi á Suðurlandsbraut með hryllilegum afleiðingum – Bilaður ljósastaur ekki lagfærður strax eftir slysið

Keyrði á móti rauðu ljósi á Suðurlandsbraut með hryllilegum afleiðingum – Bilaður ljósastaur ekki lagfærður strax eftir slysið
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Garðbæingar frussuðu úr hlátri þegar Hjörvar Hafliða nefndi þennan möguleika

Garðbæingar frussuðu úr hlátri þegar Hjörvar Hafliða nefndi þennan möguleika
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Stjarnan getur hefnt sín á KR á miðvikudag – Svona er dagskráin í Mjólkurbikarnum

Stjarnan getur hefnt sín á KR á miðvikudag – Svona er dagskráin í Mjólkurbikarnum
Eyjan
Fyrir 16 klukkutímum

Orðið á götunni: Miðflokksarmurinn vill Ásdísi bæjarstjóra sem formann í stað Guðrúnar – tíðinda að vænta fyrir landsfund 2027

Orðið á götunni: Miðflokksarmurinn vill Ásdísi bæjarstjóra sem formann í stað Guðrúnar – tíðinda að vænta fyrir landsfund 2027

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.