fbpx
Föstudagur 26.júlí 2024

Fólk klórar sér í hausnum yfir innréttingunum heima hjá Kim og Kanye – Hvað í ósköpunum er þetta?

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Þriðjudaginn 16. apríl 2019 11:00

Nú þarf Kim að svara.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian veitti innsýn inn í glæsihýsi sitt í Kaliforníu í fyrsta sinn í myndbandi fyrir tímaritið Vogue fyrir stuttu. Nú klóra margir tístarar sér í höfðinu yfir einu atriði á heimilinu sem sást í myndbandinu – baðherbergisvöskunum.

Kim sýnir stærsta baðherbergið í húsinu í myndbandinu og er það til dæmis búið stóru baðkari sem er gott að hugga sig í. Hins vegar eru það vaskarnir sem fanga athygli fólks, eða vöntun á vöskum réttara sagt. Eins og sést á skjáskotinu hér fyrir ofan og neðan eru vissulega blöndunartæki á marmaraplötu en engir vaskar sjáanlegir.

Tístarar skilja hvorki upp né niður í þessu og þurfa nauðsynlega á útskýringum að halda, en engar slíkar hafa komið frá Kim sjálfri. Einn tístari veltir því fyrir sér hvort þetta sé rándýr marmarasvampur og spyr svo: „Hva, á fátækt fólk ekki svoleiðis?“

Annar tístari telur jafnvel að um „öryggisatriði“ sé að ræða svo Kim og Kanye „drukkni ekki óvart á meðan þau dást að spegilmynd sinni.“

Enn aðrir telja þessa rándýru hönnun algjörlega fáránlega og tilgerðarlega. Stóru spurningunni er hins vegar enn ósvarað – hvernig virkar þessi innrétting?

Umrætt myndband má sjá hér fyrir neðan:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Flýgur til London í kvöld og heldur svo til Bandaríkjanna

Flýgur til London í kvöld og heldur svo til Bandaríkjanna
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Mátti ekki koma til landsins í fjögur ár en endaði í gæsluvarðhaldi

Mátti ekki koma til landsins í fjögur ár en endaði í gæsluvarðhaldi
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Var uppi í sumarbústað þegar hann vann 54 milljónir króna

Var uppi í sumarbústað þegar hann vann 54 milljónir króna
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Skemmdarverkin í Frakklandi: Spjótin farin að beinast að umhverfisverndarsinnum

Skemmdarverkin í Frakklandi: Spjótin farin að beinast að umhverfisverndarsinnum
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Tekur glæsilegt hús Greenwood á leigu – Borgar tvær og hálfa milljón á mánuði

Tekur glæsilegt hús Greenwood á leigu – Borgar tvær og hálfa milljón á mánuði
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Slot tjáir sig um hugsanleg félagaskipti

Slot tjáir sig um hugsanleg félagaskipti
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Eiginkonan gat ekki setið á sér eftir fréttir gærdagsins – „Aflið ykkur betri upplýsinga“

Eiginkonan gat ekki setið á sér eftir fréttir gærdagsins – „Aflið ykkur betri upplýsinga“
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

Gréta Karen tók lagið með Ken Jeong

Gréta Karen tók lagið með Ken Jeong

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.