fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Stjörnuspá vikunnar: Það rignir yfir þig peningum úr öllum áttum

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 22. desember 2019 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjörnuspá vikunnar

Gildir 22. – 28. desember

stjornuspa

Hrútur
11. mars – 19. apríl

Það mikið sem hvílir á þér þessa vikuna, elsku hrútur. Það er eitthvað stórt, eitthvað mikilvægt í vændum – jafnvel einhver veisla eða athöfn sem þú hlakkar til en kvíðir á sama tíma. Svo virðist sem þú þurfir að gera upp gamlar ástarskuldir. Eitthvað sem þú átt að vera búinn að gera fyrir löngu síðan, kæri hrútur.

stjornuspa

Naut
20. apríl – 20. maí

Þér halda engin bönd, mitt kæra naut, og þú veður áfram úr einu verkefni í annað án þess að staldra við og líta inn á við. Hvernig líður þér? Það er spurning sem þú mátt spyrja þig oftar. Þú ert að skipuleggja veislu og hún verður nokkuð stór. Ekki vera hrætt við að leita þér hjálpar í undirbúningum því margar hendur vinna létt verk, eins og þú veist vel. Stundum ertu bara of stolt til að biðja um hjálp því þú veist allt best.

stjornuspa

Tvíburar
21. maí – 21. júní

Fólk í tvíburamerkinu er búið að vera undir mikilli streitu og pressu heima fyrir. Það er eitthvað ekki alveg í lagi og tvíburar verða að girða sig í brók og takast á við vandamálin en ekki þegja þau í hel. Náinn fjölskylduvinur skýtur uppi kollinum og þú tekur honum fagnandi. Þið farið saman út á lífið og það léttir þér svo sannarlega lundina.

stjornuspa

Krabbi
22. júní – 22. júlí

Einhleypir krabbar ættu svo sannarlega að fylgjast með á Tinder eða líta vel í kringum sig þessa vikuna því nýr elskhugi mætir á svæðið og sá er sko ekki af verri endanum. Hann er dularfullur, fagur og áhugaverður – akkúrat það sem krabbinn þarf á að halda núna. Hugsanlega er þetta bara stundargaman en njóttu þess þá út í ystu æsar.

stjornuspa

Ljón
23. júlí – 22. ágúst

Það er einhver náinn þér sem þú hefur áhyggjur af. Þetta er manneskja sem var mjög veik fyrir nokkrum árum, jafnaði sig að fullu en er nú aftur orðin slöpp. Fylgstu vel með henni og vertu til staðar – það er það besta sem þú getur gert. Í vinnunni er allt í blóma og er verið að skipuleggja einhvers konar árshátíðarferð eða slíkt

stjornuspa

Meyja
23. ágúst – 22 .september

Það er rosalega mikið um að vera hjá meyjunni þessa vikuna, þá sérstaklega í vinnunni. Það eru ofboðslega miklar hræringar og þú veist ekki alveg í hvorn fótinn þú átt að stíga. Suma daga ertu ekki einu sinni viss hvort þú eigir að mæta í vinnuna á annað borð. En þetta skýrist fljótt og þú átt eftir að sjá að fólk ber meira traust til þín en þú hélst.

stjornuspa

Vog
23. september – 22. október

Það grípur þig eitthvert þrifæði þessa vikuna og þig langar að hreinsa húsið af öllu. Þetta er liður í að létta af sál þinni því það er íþyngjandi að hafa svona mikið dót og drasl úti um allt. Áður en vikan er á enda ertu búin að afreka mikið og ert heldur betur sátt við þig, elsku vog. Þú leggur meiri áherslu á þig en alla aðra sem skipta engu máli og markar þessi vika upphafið að heilsusamlegri lífsstíl hjá voginni.

stjornuspa

Sporðdreki
23. október – 21. nóvember

Sporðdrekinn er ofsalega hræddur þessa dagana við að hleypa fólki nærri sér. Hann vill helst af öllu vera einn og út af fyrir sig til að spá og spekúlera í hinu og þessu. Honum líður vel einum. Hins vegar er vert að minnast á það, elsku sporðdreki, að þú getur ekki verið einn að eilífu. Hleyptu fólki aðeins að þér og leyfðu öðrum að gleðja þig.

stjornuspa

Bogmaður
22. nóvember – 21. desember

Fjölskyldan skiptir öllu máli í þessari viku hjá bogmanninum. Þú þrífst á félagsskap við fjölskyldu þína, hvort sem það eru börn, maki, foreldrar, systkin eða frændur og frænkur. Þú vilt styrkja fjölskylduböndin því þú veist að þau skipta svo ofboðslega miklu máli. Svo er það símtalið sem þú færð um miðbik vikunnar sem breytir öllu – á góðan hátt.

stjornuspa

Steingeit
22. desember – 19. janúar

Þessi vika er rosalega spennandi hjá steingeitum. Það er einhver viðburður framundan sem þú ert ofboðslega spennt fyrir, steingeitin mín, og fyllir þig gleði, stolti og hamingju. Þú ert svo góð í því að meta lífið og þú leyfir þér að staldra við, líta yfir farinn veg og klappa þér á bakið fyrir allt sem þú hefur afrekað. Sama hve slæmt var í sjóinn, þú náðir alltaf að sigla skipinu heim.

stjornuspa

Vatnsberi
20. janúar – 18. febrúar

Það rignir yfir þig peningum úr öllum áttum. Hvað er að frétta?! Þú dettur í einhvern svakalegan lukkupott og færð peningagjafir úr ýmsum (sumum mjög ólíklegum) áttum. Þvílíkt heillaský sem þú stendur undir. Sama má segja með ástamálin. Þar er allt að gerast – sérstaklega hjá einhleypum vatnsberum sem geta valið úr vonbiðlum.

stjornuspa

Fiskar
19. febrúar – 20. mars

Það er einhver deyfð yfir fiskunum fyrripart viku. Þeir finna sig ekki alveg í þessum heimi og finnst lífið frekar tilgangslaust. Það er eitthvert verkefni búið að valda þeim kvíða og ama og þeir finna bara alls ekki út úr því. Svo kviknar allt í einu á perunni um miðbik vikunnar og allt í einu sést glóra í öllu.

Afmælisbörn vikunnar

22. desember – Darri Ingólfsson leikari, 40 ára
23. desember – Jónína Bjartmarz, fyrrverandi ráðherra, 67 ára
25. desember – Ólafur Kristjánsson tölvukennari, 52 ára
26. desember – Jón Bjarnason stjórnmálamaður, 76 ára
27. desember – Hera Hilmarsdóttir leikkona, 31 árs
28. desember – Atli Þór Albertsson leikari, 40 ára

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Stöð 2 lækkar verð

Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Dæmd fyrir líkamsárás á hvort annað

Dæmd fyrir líkamsárás á hvort annað
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Haaland tæpur fyrir bikarleikinn mikilvæga á morgun

Haaland tæpur fyrir bikarleikinn mikilvæga á morgun
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ten Hag útilokar það að Sancho spili fyrir sig aftur

Ten Hag útilokar það að Sancho spili fyrir sig aftur
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Varpa fram kenningu um hvarf Émile sem gæti kollvarpað rannsókninni

Varpa fram kenningu um hvarf Émile sem gæti kollvarpað rannsókninni

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.