

Ýr Þrastardóttir er konan á bak við tískumerkið Another Creation, en það er eitt þeirra merkja sem tekur þátt í Reykjavík Fashion Festival 2017 (RFF). Hátíðin er stærsti tískuviðburður ársins hérlendis og verður haldin dagana 24. og 25. mars í Hörpu. Ennþá er hægt að ná sér í miða á hátíðina á vef Hörpu.
Við ákváðum að leggja nokkrar spurningar fyrir hönnuðina sem sýna á RFF í ár, og það er Ýr Þrastardóttir, yfirhönnuður Another Creation sem er fyrst í röðinni.

Ég færi líklega í minni eigin hönnun og tæki makann með því hann er besti vinur minn og mikill sjarmur.
Ég myndi missa mig úr gleði ef týpa á broð við Tildu Swinton myndi klæðast minni hönnun, annars er ég líka mjög hrifin af Natalie Portman, Kirsten Dunst, Cate Blanchett og Charlize Theron.

Grafísk, aðsniðin, kvenleg, nútímaleg og áberandi.
Ég get ekki ímyndað mér það þar sem ég geng mikið í litum eftir skapi, en ef ég á að velja 2 uppáhalds liti, þá eru það rauður og svartur.
Sterkar kvenpersónur hafa mikil áhrif á hönnunina mína, einnig efnin sem ég vinn með og að lokum umhverfið.
Það er ný tónlist á hverjum degi, hún fer alveg eftir skapinu sem ég er í hverju sinni.
Vonandi ennþá starfandi fatahönnuður sem er komin lengra í faginu.
Besta er að sjá fötin lifna við á sviði þar sem ég fæ að skapa ákveðinn heim í bland við tónlist og grafík.
Á Facebook Another-Creation
og Instagram @xyrx og @anothercreation1