fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024

Björgvin Halldórsson: Valinn Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2018

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 18. apríl 2018 23:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2018 er Björgvin Halldórsson söngvari og goðsögn í lifanda lífi en hann var sæmdur nafnbótinni í Hafnarborg fyrr í dag. Rósa Guðbjartsdóttir formaður bæjarráðs veitti honum viðurkenninguna, en athöfnin var liður í hátíðinni Björtum Dögum sem var sett í Hafnarfirði í morgun.

„Nú er ég loksins búinn að meika það,“ sagði Björgvin þegar hann tók við nafnbótinni og þakkaði samferðamönnum sínum í tónlistinni, bæjarstjórninni og öðrum sem komu að því að útnefna hann innilega fyrir. Hann sagðist hrærður og þakklátur og þótti vænt um að samferðafólk sitt sæmdi hann slíkri nafnbót. Þá sagðist hann hafa komið víða og leyft sér að búa um stutta hríð annarsstaðar í en í Hafnarfirði en engin bær komist með tærnar þar sem Hafnarfjörður er með hælanna og uppskar hann mikið lófatak viðstaddra.

Björgvin hefur fengið fjöldann allan af viðurkenningum og nafnbótum í gegnum árin. Enginn hefur sem dæmi tekið af honum titilinn poppstjarna ársins frá því 1969. Þá hefur hann verið sæmdur heiðursverðlaunum Íslensku tónlistarverðlauna, auk þess að vera handhafi riddarakross hinnar íslensku Fálkaorðu.

Björgvin Halldórsson er fæddur í Hafnarfirði 16. apríl 1950 og hóf feril sinn með hafnfirsku hljómsveitinni Bendix og síðan tók við sannkallað ævintýri með hljómsveitum á borð við Flowers, Ævintýri, Brimkló, Changes, HLH flokknum og fleiri. Björgvin var valinn poppstjarna ársins árið 1969sá,  eini sem hefur hlotið þann titil. Björgvin hefur í gegnum tíðina brugðið fyrir sig poppi, rokki, kántrý, ballöðusöng og Júróvisjónað , ógleymdum jólalögunum. Það má finna lag úr hans safni við hvert tækifæri. Björgvin er söngvari, lagahöfundur, upptökustjóri og hljómplötuframleiðandi. Hann hefur tekið upp fleiri hundruð lög á ferlinum sem nú spannar hálfa öld. Auk þess er hann goðsögn í lifanda lífi og kannski ekki hvað síst fyrir fyrir snaggaralegar athugasemdir sínar um menn og málefni

Þeir sem hlotið hafa nafnbótina Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar í gegnum árin eru:
2005 Sigrún Guðjónsdóttir, Rúna, myndlistarmaður
2006 Elín Ósk Óskarsdóttir, söngkona
2007 Jónína Guðnadóttir, myndlistarmaður
2008 Sigurður Sigurjónsson, leikari
2009 Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, söngkona
*Ekki voru útnefndir Bæjarlistamenn á árunum 2010 til 2013
2014 Andrés Þór Gunnlaugsson tónlistarmaður
2017 Steingrímur Eyfjörð myndlistarmaður
2018 Björgvin Halldórsson söngvari

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Hrikaleg líkamsárás í Síðumúla

Hrikaleg líkamsárás í Síðumúla
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Karl-remba KR-inga í Morgunblaðinu vekur nokkra athygli – Segja aðra borga betur

Karl-remba KR-inga í Morgunblaðinu vekur nokkra athygli – Segja aðra borga betur
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Sancho klár í að snúa aftur til United ef þetta gerist

Sancho klár í að snúa aftur til United ef þetta gerist
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

CCP og Smitten efst á nýjum lista Great Place to Work

CCP og Smitten efst á nýjum lista Great Place to Work
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Stórfurðuleg ákvörðun UEFA útskýrð

Stórfurðuleg ákvörðun UEFA útskýrð
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Er efstur á óskalista Manchester United fyrir sumarið

Er efstur á óskalista Manchester United fyrir sumarið