fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fókus

Sara greindist með krabbamein ári eftir að hún varð fósturmamma dóttur sinnar

Auður Ösp
Föstudaginn 12. maí 2017 23:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ef ég hefði greinst áður en hún kom hefðum við aldrei fengið hana. Í dag er ég stimpluð krabbameinssjúklingur í öllum bókum. Við vorum því mjög heppin með hvernig stjörnurnar röðuðust upp á stjörnuhimininn,“ segir Sara Ómarsdóttir en hún var aðeins 34 ára þegar hún var greind með brjóstakrabbamein. Ári áður höfðu Sara og eiginmaður hennar Kristján Bergmann Tómasson tekið dóttur sína Heiðu í fóstur.

Í viðtali sem birtist í nýjasta tölublaði Akureyri Vikublað kemur fram að þau Sara og Kristján hafi á sínum tíma nýtt sér tæknina til að eignast eldra barn sitt, Jökul Bergmann sem 9 ára. Þeim tókst hins vegar ekki að eignast annað barn þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og sneru sér því að fósturkerfinu.

„Við vorum komin í smásjárfrjóvgun, sem er mesta mögulega inngripið, og eftir tvær fullar slíkar meðferðir ásamt uppsetningu á frystum fósturvísum ákváðum við að hætta þessu og reyna heldur að komast inn í fósturkerfið. Við vorum í þessu frjósemisstandi frá 2006 til 2014, alltaf að byggja upp hormónakerfið eða slökkva á því. Þetta var mikið álag, alltaf að reyna og verða fyrir vonbrigðum,“ segir Sara en dóttir þeirra hjóna, Heiða var aðeins 6 daga gömul þegar þau fengu hana í fangið.

Ljósmynd/Guðrún Þórs fyrir Akureyri Vikublað.
Ljósmynd/Guðrún Þórs fyrir Akureyri Vikublað.

„Hún útskrifaðist til okkar og við gengum út af sjúkrahúsinu með þennan litla einstakling sem við tengdumst ekkert. Það var eins og við værum að sækja okkur hvolp. Þetta var svo súrrealískt. Innan 23 tíma fór fram getnaður, meðganga og fæðing.“

Það var síðan ári síðar að áfall dundi yfir fjölskylduna en þá greindist Sara með brjóstakrabbamein. Hún gekkst í kjölfarið undir aðgerð og geisla en slapp við lyfjameðferð þar sem að í ljós að æxlið hafði ekki dreift sér. Hún mun þó þurfa að vera undir reglulegu eftirliti næstu árin. Sara og Kristján fengu það staðfest þegar Heiða var sex mánaða gömul að um varanlegt fóstur væri að ræða.

Ljósmynd/Guðrún Þórs fyrir Akureyri Vikublað.
Ljósmynd/Guðrún Þórs fyrir Akureyri Vikublað.

„Hún er ekki að fara neitt frá okkur, á því er enginn vafi og vonandi fáum við að ættleiða hana. Við gátum ekki eignast barn en gátum veitt barni sem ekki átti möguleika á heilbrigðu fjölskyldulífi fjölskyldu. Það eru á milli 200–300 börn sem eru í varanlegu fóstri á hverju. Við erum svo þakklát fyrir að fá að gefa Heiðu fjölskyldu og heimili og fyrir það sem hún gefur okkur,“ segir Sara en viðtalið í heild sinni má finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Ragna Sif innanhússhönnuður selur glæsilegt parhús á Kársnesi

Ragna Sif innanhússhönnuður selur glæsilegt parhús á Kársnesi
Fókus
Fyrir 2 dögum

Brad Pitt og Tom Cruise sameinast aftur eftir 24 ár

Brad Pitt og Tom Cruise sameinast aftur eftir 24 ár
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Átakanleg frásögn Evu Marýjar: „Ég svaf með hníf og piparúða til að verja mig“

Átakanleg frásögn Evu Marýjar: „Ég svaf með hníf og piparúða til að verja mig“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Johnny Depp segist hafa endað sem prófmál MeToo-hreyfingarinnar – Hann sér ekki eftir neinu

Johnny Depp segist hafa endað sem prófmál MeToo-hreyfingarinnar – Hann sér ekki eftir neinu