fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Fókus

Safnar saman afmæliskortum fyrir kraftaverkastúlkuna Þuríði Örnu: „Ég veit að það myndi gleðja hana endalaust mikið“

Áslaug Ósk hefur talað opinskátt um veikindi dóttur sinnar undanfarin ár – Greindist með heilaæxli 2 ára og hefur síðan þá barist við erfið veikindi – Fagnar 15 ára afmæli sínu síðar í mánuðinum

Auður Ösp
Miðvikudaginn 3. maí 2017 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hún er mikið afmælisbarn einsog mamma sín og öll systkinin hennar, hún elskar að gleðja aðra og það er rosalega auðvelt að gleðja hana,“ segir Áslaug Ósk Hinriksdóttir, móðir Þuríðar Örnu Óskarsdóttur sem greindist með heilaæxli tveggja ára gömul og tveimur árum síðar, árið 2006, var æxlið orðið illkynja. Þuríður Arna hefur síðan þá glímt við erfið veikindi sem lýsa sér í illvígum flogaköstum. Hún er á lífi í dag, þvert á spár lækna og mun fagna 15 ára afmæli sínu þann 20.maí næstkomandi.

Árið 2006, þegar æxlið var orðið illkynja og Þuríður lömuð öðrum megin og krampandi um 50 sinnum á dag, töldu læknar hana dauðvona. Foreldrar hennar, Áslaug og maður hennar Óskar Arnar Guðbrandsson neituðu hins vegar að gefast upp. Þuríður Arna gekkst síðar undir geislameðferð.

„Maður má aldei gefast upp og við misstum aldrei vonina. Ekki heldur þegar læknar sögðu að hún ætti aðeins nokkra mánuði eftir,“ sagði Áslaug Ósk í viðtali við DV árið 2009 en Þuríður Arna var þá byrjuð í öðrum bekk og byrjuð að læra að lesa. Árið 2010 lamaðist Þuríður Arna hins vegar á ný og gekkst undir sterameðferð og síðan þá hefur æxlið farið minnkandi. Hún fær mun sjaldnar krampa í dag en að sögn Áslaugar átti síðasta kastið sér stað í október á síðasta ári.

Áslaug Ósk hefur talað opinskátt um veikindi dóttur sinnar undanfarin ár en hún hélt lengi úti vinsælli bloggsíðu þar sem hún sagði frá daglegu lífi Þuríðar og fjölskyldunnar. Undanfarin misseri hefur hún haldið úti facebooksíðunni Veikindi Þuríðar Örnu og leyft fólki að fylgjast með framgangi mála. Þuríður Arna er í dag undir reglulegu eftirliti lækna. Hún er greind með þroskahömlun en líkt og Áslaug Ósk lýsir í færslum á síðunni lætur hún veikindin ekki stoppa sig, heldurstundar hún nám í Klettaskóla, á góðar vinkonur og svo má nefna sem dæmi að hún keppti nýverið á Íslandsmóti fatlaðra í nútímafimleikum.

Meðfylgjandi mynd var tekin af Þuríði Örnu og fjölskyldu hennar árið 2012.
Meðfylgjandi mynd var tekin af Þuríði Örnu og fjölskyldu hennar árið 2012.

Sterk og mikil viðbrögð

Sem fyrr segir mun Þuríður Arna fagna 15 ára afmæli sínu síðar í mánuðinum. Í gærdag setti Áslaug Ósk inn beiðni á facebooksíðu hennar þar sem hún benti á að þrátt fyrir að líðan Þuríðar hefði verið góð að undanförnu
þá séu ýmsir fylgikvillar sem fylgja svo langvígum veikindum. Bað hún um leið fólk um að senda Þuríði Örnu afmæliskort í tilefni dagsins þar sem það myndi svo sannarlega gleðja hana mikið.

„Mig langar að gleðja hana ennþá meir á sjálfan afmælisdaginn og þess vegna leita ég til ykkar. Mig langaði að athuga hvort þið gætuð sent henni afmæliskort með fallegri kveðju, því ég veit að það myndi gleðja hana endalaust mikið,því ég held að hún viti ekki hvað margir hugsa fallega til hennar.

Þuríður Arna hitti eina af sínum uppáhaldssöngkonum, Karítas Hörpu á konukvöldi í Smáralind.
Með átrúnaðargoðinu Þuríður Arna hitti eina af sínum uppáhaldssöngkonum, Karítas Hörpu á konukvöldi í Smáralind.

Ég yrði ofsalega þakklát ef þið gætuð orðið að þessari ósk minni og Þuríður Arna yrði (hún veit að sjálfsögðu ekkert af þessu) enn glaðari að fá kort í „póstkassann“ merkt henni, með fallegri kveðju til hennar og fá að lesa á sjálfan afmælisdaginn.“

Af viðbrögðunum að dæma er víst að Þuríður Arna á von á ófáum kortum og hlýjum kveðjum þann 20.maí næstkomandi en í samtali við blaðamann DV segir Áslaug að fjölskyldan vilji gleða Þuríði sérstaklega mikið á afmælisdaginn.

„Hún var með fjölskylduafmæli um helgina með systrum sínum sem eiga afmæli 30.apríl ,en við gerum alltaf eitthvað sérstakt á afmælisdögum þeirra,“ segir Áslaug um leið og kveðst þakklát öllum þeim sem myndu sjá sér fært að rita afmæliskveðju til Þuríðar.

Hér má finna heimilsfang Þuríðar fyrir þá sem vilja gleðja hina ungu hetju á afmælisdaginn:

Þuríður Arna Óskarsdóttir
Kleifarsel 57
109 Reykjavík

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Starfsmaður skemmtiferðaskips birti mynd af launaseðlinum sínum

Starfsmaður skemmtiferðaskips birti mynd af launaseðlinum sínum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ragnhildur gagnrýnir „ofurfyrirsætusnarlið“ sem fer sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum

Ragnhildur gagnrýnir „ofurfyrirsætusnarlið“ sem fer sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Elma lýsir daglegu lífi í Ástralíu – Þessu furðar hún sig mest á í umferðinni

Elma lýsir daglegu lífi í Ástralíu – Þessu furðar hún sig mest á í umferðinni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn fékk áfall þegar rasísk mynd af honum frá háskólaárunum kom upp á yfirborðið – „Ég get ekki flúið fortíðina“

Þorsteinn fékk áfall þegar rasísk mynd af honum frá háskólaárunum kom upp á yfirborðið – „Ég get ekki flúið fortíðina“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sunneva gerði snarlið sem ofurfyrirsæturnar elska

Sunneva gerði snarlið sem ofurfyrirsæturnar elska
Fókus
Fyrir 5 dögum

Segja frá djúpri tengingu tveggja einstaklinga sem er sönn og óumflýjanleg

Segja frá djúpri tengingu tveggja einstaklinga sem er sönn og óumflýjanleg