Skemmtikrafturinn grínast með hnetuofnæmi sonarins á Twitter – Náði hann að blekkja Eið Smára?
Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, fór nýverið að vera virkur á Twitter og hefur sópað að sér fylgjendum og farið með gamanmál á samfélagsmiðlinum síðan. Hann átti óneitanlega eitt vinsælasta tístið í gær þegar hann greindi frá ansi athyglisverðu partítrikki sem hann grínaðist með að grípa til þegar hann fær gesti í heimsókn.
Guttinn minn er með hnetuofnæmi, svo ég gef honum stundum hnetur þegar við fáum gesti, magnað að sjá hvað hann túttnar út á stuttum tíma:)
— Sveppi (@Sveppi2) May 2, 2017
//platform.twitter.com/widgets.js
Eiður Smári Guðjohnsen, æskuvinur Sveppa, grínast með að hafa fallið fyrir brellunni.
@Sveppi2 ég sem hélt að páskaeggin hefðu farið svona ílla í hann…
— Eidur Gudjohnsen (@Eidur22Official) May 2, 2017