fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Læknar uggandi yfir nýju trendi hjá körlum sem gengur út á að stækka punginn

Fókus
Miðvikudaginn 13. maí 2026 09:30

Nei, þetta borgar sig ekki. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýtt og umdeilt nettrend, sem gengur undir heitinu „ballmaxxing“, hefur vakið miklar áhyggjur meðal lækna og heilbrigðisstarfsfólks. Trendið felst í því að karlar sprauta eða dæla saltvatnslausn inn í punginn til að láta hann virðast mun stærri.

Í frétt Metro kemur fram að á samfélagsmiðlum og spjallsvæðum á borð við Reddit hafi þúsundir manna deilt myndum og reynslusögum þar sem pungurinn er blásinn út og í sumum tilfellum orðinn á stærð við greipaldin eða stóra appelsínu.

Læknar vara nú eindregið við þróuninni og segja hana geta valdið varanlegum skaða á taugum, blóðflæði og æxlunarfærum.

Eitt það hættulegasta

„Ballmaxxing“ felst yfirleitt í því að stinga nál í punginn og láta saltvatn renna inn í vefina í gegnum búnað sem hægt er að kaupa á netinu. Þótt vökvinn frásogist yfirleitt aftur á einum til tveimur dögum segja sérfræðingar að áhættan hverfi ekki með honum.

Dr. Baldeep Farmah, sem sérhæfir sig í útlits- og fegrunarlækningum fyrir karla, segir við Viral Thread að hann hafi séð ýmislegt á ferli sínum en „ballmaxxing“ sé eitt það hættulegasta sem hann hafi séð spretta upp úr netmenningu síðustu ára.

„Það er ekkert athugavert við að karlar vilji hafa áhrif á útlit sitt,“ segir Farmah. „En það er allt annað mál þegar nafnlausir reikningar á Reddit eru að hvetja fólk til að stinga nál í punginn á sér heima í stofu.“

Hann segir að þótt netnotendur lýsi aðgerðinni sem „skaðlausri“ vegna þess að saltvatnið hverfi aftur geti skaðinn á vefjum, taugum og blóðrás orðið varanlegur.

Mikil áhætta

Kynlífsfræðingurinn Gigi Engle segir „ballmaxxing“ tengjast svokallaðri kink-menningu og BDSM-hefðum. Sumir fái kynferðislega örvun af því að sjá eða finna punginn þenjast út, á meðan aðrir tengi það við vald, undirgefni eða ýktar hugmyndir um karlmennsku.

Hún segir stór kynfæri lengi hafa verið tengd hugmyndum um styrk, yfirráð og „að vera meiri karlmaður“.

Læknar segja þó að áhættan sé gríðarleg. Dr. Shirin Lakhani, sérfræðingur í kynheilbrigði og fegrunarlækningum, segir punginn innihalda afar viðkvæma vefi sem séu ekki gerðir til að taka við slíku magni af vökva.

„Þarna eru eistu, taugar og mikilvægar æðar sem geta orðið fyrir varanlegum skaða,“ segir hún. Hún nefnir að með þessu aukist hættan á bakteríusýkingum, blóðeitrun, taugaskemmdum, skertri blóðrás, ristruflunum, ófrjósemi, blóðtöppum og drepi í vefjum.

Ef blóðflæði skerðist of lengi getur vefurinn dáið, sem getur kallað á bráðaaðgerð þar sem dauður vefur er fjarlægður til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu.

Í fréttum erlendra fjölmiðla kemur fram að trendið sé enn á „jaðrinum“ en áhuginn virðist þó fara vaxandi. Læknar eru þó sammála um að þetta sé eitthvað sem fólk ætti alls ekki að gera.

„Það er enginn fagurfræðilegur ávinningur sem vegur upp á móti hættunni á drepi, blóðeitrun eða varanlegum skaða á æxlunarfærum,“ segir Dr. Farmah.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur