

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona segir frá því að hún hafi nú gengist undir starfshæfismat sem Þjóðleikhúsið sendi hana í. Segir hún ljóst að matið sé tilgangslaust og veltir fyrir sér hvað þessi opinbera stofnun hafi greitt fyrir matið.
Steinunn Ólína er fastráðin hjá Þjóðleikhúsinu og hefur nú snúið aftur úr veikindaleyfi. Greindi hún frá því fyrir helgi að Þjóðleikhúsið hefði farið fram á að hún undirgengist starfshæfismat og velti fyrir sér hvort þetta væri liður í tilraun leikhússins til að losna við hana úr starfi.
Veltir fyrir sér hvort Þjóðleikhúsið sé að reyna að losna við hana – „Ekki er öll vitleysan eins!“
Steinunn Ólína skrifar í nýjum Facebook-pistli hún hafi í kjölfarið fengið ótal ábendingar opinberra starfsmanna um ólögmæti þessa mats sem Þjóðleikhússtjóri skipaði henni að fara í. Hún veltir fyrir sér kostnaðinum:
„Hvað borgar almenningur á Íslandi fyrir það að Steinunn Ólína fari í starfshæfismat? Þessu getur vitanlega Þjóðleikhúsið svarað! Og grínfyrirtækið Auðnast er vitanlega með gjaldskrá fyrir slíkt! Ég er ekki löglærð en sögur annarra sem hafa skrifað mér af málum sínum ekki ósvipuðum eru vitanlega vísbending um afskaplega kostnaðarsamt jafnvel ólöglegt stjórnsýslurugl hins opinbera.“
Auðnast mun vera fyrirtæki sem tekur slíkt mat að sér.
Telur Steinunn Ólína ljóst að tíma læknisins sem hún hitti hefði verið betur varið í önnur verkefni:
„Hvað er almenningur búinn að borga Auðnast fyrir tilgangsleysið? Þetta eru okkar peningar! Það vantar sérgreinalækna á LSH!!! En læknar sem velja þægilega innivinnu á blússandi launum til að sitja á skrifstofu frekar en að bjarga mannslífum, eiga kannski bara ekki að vinna við lækningar heldur uppbulluð skrifstofustörf? Ég spyr því: Ríkisstofnanir eins og í mínu tilfelli vinnustaður minn Þjóðleikhúsið borga fyrir starfshæfismat á starfsfólki sínu hjá einkafyrirtækinu Auðnast. Hvað borgar almenningur fyrir það að Steinunn Ólína fari í starfshæfismat? Þessu getur vitanlega Þjóðleikhúsið svarað! Og Auðnast er vitanlega með gjaldskrá fyrir slíkt!“
Merkir (taggar) Steinunn Ólína nokkra leikara sem starfa í Þjóðleikhúsinu í færslunni sem og Magnús Geir Þórðarson Þjóðleikhússtjóra. Hvort færslan mun draga einhvern dilk á eftir sér eða hafa einhver önnur áhrif á framtíð Steinunnar Ólínu í Þjóðleikhúsinu á væntanlega eftir að koma í ljós.