fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fókus

Stjarna Finna í Eurovision segir að sigur yrði hin fullkomna hefnd – „Þetta yrði mín langatöng til hans“

Fókus
Þriðjudaginn 12. maí 2026 19:00

Pete Parkkonen og Linda Lampenius eru líkleg til afreka í Eurovision í ár. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Finnska fiðluleikkonan og Eurovision-keppandinn Linda Lampenius segir að sigur í Eurovision-söngvakeppninni yrði „fullkomin hefnd“ gegn fyrrverandi umboðsmanni sínum, Peter J. Nygård, sem afplánar nú 11 ára fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot í Kanada.

Lampenius er hluti af finnska Eurovision-atriðinu í ár ásamt söngvaranum Pete Parkkonen, en Finnland er samkvæmt veðbönkum talið sigurstranglegasta þjóðin í keppninni sem fram fer í Vínarborg. Úrslitakvöldið fer fram á laugardag, en eins og kunnugt er ákváðu Íslendingar að sitja heima í þetta skiptið.

Finnland hefur aðeins einu sinni áður unnið keppnina, þegar Lordi sigraði árið 2006 með laginu Hard Rock Hallelujah.

Yrði hennar langatöng til hans

Í viðtali við breska blaðið Mirror segir Lampenius að mögulegur sigur myndi hafa djúpa persónulega þýðingu eftir langvarandi átök hennar við Nygård, sem hún hefur sakað um að hafa eyðilagt líf sitt og starfsferil um árabil.

„Þetta yrði mín hefnd, mín langatöng til Nygard,“ sagði hún. „Að vinna Eurovision væri hin fullkomna hefnd.“

Lampenius lýsti nýverið reynslu sinni á samfélagsmiðlum þar sem hún rifjaði upp að hún hefði árið 1997 skrifað undir samning við Nygård án þess að vita hvers konar maður hann væri. Hún kallaði hann síðar „djöfulinn“ og vísaði til tengsla hans við Jeffrey Epstein og Andrews Mountbatten-Windsor, áður Andrés prins.

Þurfti að biðjast opinberlega afsökunar

Peter Nygård, sem er 84 ára og fæddur í Finnlandi, var árið 2023 sakfelldur fyrir fjögur kynferðisbrot gegn konum í Kanada. Dómarinn í málinu lýsti honum sem „kynferðislegu rándýri“ sem hefði nýtt auð sinn og áhrif til að misnota konur. Hann hefur einnig verið nefndur í tengslum við rannsóknir á Jeffrey Epstein og hefur hann raunar verið kallaður hinn „kanadíski Epstein“ eins og sjá má hér að neðan:

Sjá einnig: „Kanadíski Epstein“ afplánar 11 ára dóm – Bauð Andrew í heimsókn á karabíska lúxusgrenið sitt þar sem mansal og myrkraverk tíðkuðust

Deilur Lampenius og Nygards hófust opinberlega árið 1998 þegar hún varaði finnskar konur við honum í tímaritsgrein og sakaði hann um kynferðislega misnotkun og ósæmilega hegðun gagnvart konum og stúlkum. Í kjölfarið stefndi Nygard henni fyrir meiðyrði og krafðist milljóna punda í skaðabætur.

Vegna fjárskorts gat Lampenius ekki haldið bardaganum áfram og neyddist til að birta opinbera afsökunarbeiðni í finnsku dagblaði. Hún hefur síðar sagt að það hafi haft alvarleg áhrif á orðspor sitt í Finnlandi og að hún hafi þurft að lifa með afleiðingunum í tvo áratugi.

„Ég varð skúrkurinn. Ég var sú sem sagði konum að vara sig á honum,“ sagði hún nýlega í viðtali við sænska fjölmiðla.

Nygard er einnig sakaður í hópmálsókn í Bandaríkjunum þar sem tugir kvenna halda því fram að hann hafi um áratugaskeið stundað skipulagða kynferðislega misnotkun.

Veðbankar í Bretlandi telja Finnland nú líklegast til sigurs í Eurovision í ár en sjá má framlag Finna hér að neðan:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Íslenskar konur sakna ævintýradrykksins – „Myndi fremja glæpi til þess að fá Svala aftur“

Íslenskar konur sakna ævintýradrykksins – „Myndi fremja glæpi til þess að fá Svala aftur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Glímir við heilaæxli á meðan sonurinn jafnar sig eftir erfiða aðgerð og eiginmaðurinn heyir kosningabaráttu – „Njótið lífsins og verið þakklát fyrir það sem að þið eigið“

Glímir við heilaæxli á meðan sonurinn jafnar sig eftir erfiða aðgerð og eiginmaðurinn heyir kosningabaráttu – „Njótið lífsins og verið þakklát fyrir það sem að þið eigið“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Dánarorsök Buffy-leikarans opinberuð

Dánarorsök Buffy-leikarans opinberuð
Fókus
Fyrir 6 dögum

Raunveruleikastjarnan tekur erfiða ákvörðun um framtíðina eftir margar misheppnaðar tilraunir

Raunveruleikastjarnan tekur erfiða ákvörðun um framtíðina eftir margar misheppnaðar tilraunir
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Áhyggjufullur og með uppköst í viku“ fyrir viðtal hjónanna við Oprah

„Áhyggjufullur og með uppköst í viku“ fyrir viðtal hjónanna við Oprah
Fókus
Fyrir 1 viku

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“