fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fókus

Patrekur Jaime leysir Ásdísi bæjarstjóra af – Þetta eru áherslumál hans í Kópavogi

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 13. maí 2026 08:54

Patrekur Jaime. Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Vá aldrei hefði mér dottið í hug hvað væri létt að vera bæjarstjóri. Skil ekki fólk að kvarta yfir að maður sé að byggja of þétt. Sé nú bara á milli allra húsa í hverfinu,“
segir Patrekur Jaime í upphafi fimm mínútna langs nýs myndbands Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Í myndbandinu mátar Patrekur Jaime sig við hlutverk bæjarstjórans í Kópavogi í einn dag.

Hann byrjar á því að vekja Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra, skoða fataskápinn hennar og ákveða fatnað dagsins.

„Mér finnst ég geta verið bæjarstjóri Kópavogs, þetta er svolítið snemma en það er bara rise and shine.“

Patrekur og Ásdís keyra svo á kosningaskrifstofu flokksins og lendir Patrekur í nokkrum vandræðum. Patrekur segir frá hvað hann elskar við Kópavog.

„Ég kveikti einu sinni í Guðmundarlundi,“ játar Patrekur.

„Ég trúi ekki á það, segir Patrekur þegar Ásdís spyr hvort hann viti hvað verðbólga er. Út af því að ég finn ekki fyrir því, eða ég hef aldrei pælt í því Þetta er eins og þegar fólk segir að bensín er geðveikt dýrt og ég er svona: Hvað ætlarðu að gera í því? Ætlarðu að fara að labba? Þú verður bara að taka bensín, skilurðu. Ég er frekar oft á Kastrup og það er alltaf fullt, það getur ekki verið verðbólga, ef það er alltaf fullt úti að borða. Er það galið?“

Patrekur sest svo á fund með frambjóðendum flokksins og leysir áherslumálin á augabragði.

„Ég vil frían bíl fyrir hvern Kópavogsbúa. Við þurfum ekkert að pæla í verðbólgunni, hún er feik eins og þið sjáið. Full Smáralind. Lækka skatta og þá sérstaklega fyrir hátekjufólk. Bling bling bling.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 6 dögum

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða
Fókus
Fyrir 6 dögum

Bonnie Tyler gekkst undir bráðaaðgerð

Bonnie Tyler gekkst undir bráðaaðgerð
Fókus
Fyrir 6 dögum

Erna Hrönn tók stjórnina á eigin lífi: „Ég var komin á þann stað að mig langaði ekki að vera til lengur“

Erna Hrönn tók stjórnina á eigin lífi: „Ég var komin á þann stað að mig langaði ekki að vera til lengur“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hætti skyndilega þátttöku í The White Lotus – Ástæðan var þessi ágreiningur

Hætti skyndilega þátttöku í The White Lotus – Ástæðan var þessi ágreiningur