fbpx
Miðvikudagur 10.júní 2026
Fókus

Leikstjórinn sakaður um að hafa notað andlit ungrar leikkonu í leyfisleysi – Er þetta sama manneskjan?

Fókus
Fimmtudaginn 7. maí 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Q’orianka Kilcher hefur höfðað mál gegn kvikmyndaleikstjóranum James Cameron og Walt Disney vegna meintrar óleyfilegrar notkunar á andlitseinkennum hennar við sköpun persónunnar Neytiri í Avatar-myndunum.

Samkvæmt málssókninni, sem lögð var fram í vikunni, notaði Cameron ljósmynd af Kilcher þegar hún var 14 ára gömul í hlutverki Pocahontas í myndinni The New World sem grunn að útliti Neytiri.

Er því haldið fram að andlit hennar hafi verið skannað og nýtt í hönnunarferli persónunnar án hennar vitundar eða samþykkis.

Í stefnunni kemur fram að Cameron hafi sjálfur viðurkennt í viðtölum að mynd af Kilcher hafi verið innblástur fyrir persónuna. Þá er vísað til þess að ákveðin einkenni hennar, meðal annars varir, haka og kjálkalína, sjáist greinilega í lokaútliti Neytiri, sem Zoe Saldaña lék í myndunum.

Kilcher segir að hún hafi fyrst áttað sig á umfangi málsins seint á síðasta ári þegar gamalt viðtal við Cameron fór að dreifast á samfélagsmiðlum. Þar hafi hann sagt að „raunverulegi uppruninn“ að Neytiri væri ljósmynd úr Los Angeles Times.

Lögmaður Kilcher, Arnold P. Peter, segir málið snúast um að andlitseinkenni ungrar frumbyggjastúlku hafi verið nýtt í gróðaskyni án hennar samþykkis. „Þetta var ekki innblástur heldur útdráttur,“ sagði hann í yfirlýsingu.

Í málssókninni er einnig vísað til nýrra laga í Kaliforníu um notkun djúpfalsaðs efnis (e. deepfake), þar sem persóna byggð á útliti ólögráða einstaklings birtist síðar í rómantískum og kynferðislega nánum atriðum í seríunni.

Kilcher fer fram á skaðabætur, hlutdeild í hagnaði sem rekja má til notkunar á útliti hennar og opinbera leiðréttingu frá framleiðendum myndanna.

Hvorki Cameron né fulltrúar Disney hafa tjáð sig um málið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Sveinn Andri og Vigdís gift

Sveinn Andri og Vigdís gift
Fókus
Fyrir 2 dögum

Instagram vikunnar: „Ég er að hugsa!“

Instagram vikunnar: „Ég er að hugsa!“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Tíu ódýrustu einbýlishúsin á Íslandi í dag

Tíu ódýrustu einbýlishúsin á Íslandi í dag
Fókus
Fyrir 4 dögum

Segir Ódysseif „erfiðustu mynd sem ég hef nokkurn tímann gert“

Segir Ódysseif „erfiðustu mynd sem ég hef nokkurn tímann gert“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Nístandi sorg eftir andlát Jóhannesar – „Átti allt lífið framundan“

Nístandi sorg eftir andlát Jóhannesar – „Átti allt lífið framundan“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ný heimildarmynd varpar ljósi á leynda sjúkdómsbaráttu Marilyn Monroe

Ný heimildarmynd varpar ljósi á leynda sjúkdómsbaráttu Marilyn Monroe