fbpx
Föstudagur 06.mars 2026
Fókus

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 08:20

Böddi og Kristina.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 16. febrúar kom út lagið Í hangsinu. Það er sungið af Bödda frá Íslandi og Kristinu Bærendsen frá Færeyjum. Böddi hefur sungið popp- og rokkmúsík í gegnum tíðina og einnig sungið djass undanfarin ár, þar á meðal á plötum bassaleikarans, Halla Guðmunds: Black & White – Chet og Svefndansi. Hann hefur tvisvar tekið þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins. 

Kristina er mjög vinsæl í Færeyjum og líka þekkt í Danmörku sem söngkona og er hún mikið í kántrítónlist. Hún hefur einnig tekið tvisvar þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Svo vill til að þetta mjög svo músíkalska par er líka sambýlisfólk sem heldur sig á vetrum í miðbæ Hafnarfjarðar en á sumrin er lagst í flakk, stundum með Norrænu þar sem þau hafa komið fram með söngprógramm á skipinu, og sungið og spilað á tónlistarhátíðum í Færeyjum og í Danmörku. Þau eru líka bæði laga- og textahöfundar þó ekki sé svo í þessu lagi.

Í hangsinu er eftir Ingva Þór Kormáksson en textinn eftir skáldið Anton Helga Jónsson. Lagið er þriðji singullinn eða stuttskífan frá væntanlegri plötu Latínudeildarinnar og er ballaða, svolítið í stíl djass- og söngleikjalaga frá miðri síðustu öld, kannski djass handa þeim sem alla jafna hlusta ekki svo mikið á djass.

Eðvarð Lárusson stjórnaði upptökum og lék á gítar. Aðrir hljóðfæraleikarar eru Valdimar Olgeirsson á bassa, Karl Pétur Smith á trommur og Jóhannes Guðjónsson píanóleikari. Birgir Jóhann Birgisson hljóðblandaði og sá um frágang hljóðrits.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Stórstjarnan segist nú fullfær um krufningar

Stórstjarnan segist nú fullfær um krufningar
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sir Elton birti sjaldséða fjölskyldumynd – Synirnir orðnir táningar

Sir Elton birti sjaldséða fjölskyldumynd – Synirnir orðnir táningar
Fókus
Fyrir 3 dögum

Mikil ólga vegna ákvörðunar RÚV – Edda Björgvins vill fá svör

Mikil ólga vegna ákvörðunar RÚV – Edda Björgvins vill fá svör
Fókus
Fyrir 3 dögum

Allt að 30 ára bið eftir geðlæknisþjónustu – ,,Það ræður ekkert kerfi við þetta”

Allt að 30 ára bið eftir geðlæknisþjónustu – ,,Það ræður ekkert kerfi við þetta”
Fókus
Fyrir 6 dögum

Danny Rolling og morðin sem urðu kveikjan að Scream-myndunum

Danny Rolling og morðin sem urðu kveikjan að Scream-myndunum
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína