Fókus

Harris hótaði að hætta - Fannst hann vannýttur í stærstu þáttaröð Paramount+

Mynd
Kelly Reilly og Ed Harris í hlutverkum sínum.

Deadline greinir frá því að leikarinn Ed Harris muni snúa aftur í aðra þáttaröð þáttaraðarinnar Dutton Ranch, sem er nýjasta framhaldsþáttaröðin úr Yellowstone sögusviðinu. Handrit er í skrifu,, tökur hefjast 15. janúar og hefur Harris verið tilkynnt að hann verði með.

Harris (75) tjáði sig um tökur fyrri þáttaraðarinnar, sagðist hafa haft slæma reynslu af og hótaði að hætta.

„Um miðja fyrstu þáttaröðina var ég tilbúinn að fara. Ég sagði: „Farið með mig héðan,“ ef ég á að segja satt,“ sagði Harris við Variety á mánudag. „Vegna þess að mér fannst ég ekki vera notaður.“

Harris bætti við að honum finndist hann áttavilltur varðandi persónu sína, Víetnamstríðsmanninn og dýralækninn Everett McKinney.

„Áður en ég skrifaði undir samninginn var töluvert rætt við mig um hvaða þáttaröð væri í gangi, hvað persónan mín ætlaði að gera og að ég væri ein af fjórum aðalpersónunum. Og það var ekki alveg raunin,“ útskýrði Harris og minntist þess að hafa sagt framleiðendum að honum fyndist hann vannýttur og ómerkilegur.

Mynd

Harris sagði að atriði hefði verið eytt úr einum af upphafsþáttunum, sem hann sagði að hefði gert hann mjög reiðan.

„Eitt af því sem þau sögðu mér áður en ég skrifaði undir samninginn var: „Þú færð að syngja.“ Svo er atriði þarna inni ... ég er að tala við Kelly [Reilly] á barnum og Cole [Hauser] kemur inn og segir: „Ókei, Everett. Komdu, það er komið að þér.“ Ég geng að hljóðnemanum og þau klippa það út. Þau klippa lagið út.“

Harris sagði að framleiðendur hefðu talið atriðið „of spennandi fyrir dökkan endi þáttarins“, en að hans mati var þetta næg ástæða fyrir hann til að vilja rifta samningi sínum.

Mynd
Ed Harris og Annette Benning í hlutverkum sínum í Dutton Ranch.

Harris viðurkennir þó að hann sé ánægður með lokaafurðina og að þáttaröðin væri frekar góð eftir að hafa horft á hana. „Mér leið vel með það sem ég gerði í þessu og mér fannst ég vera tiltölulega mikilvægur fyrir söguna, en á meðan á tökum stóð fannst mér það ekki.“ 

Dutton Ranch var frumsýnd 15. maí á Paramount+ og lokaþátturinn var sýndur 3. Júlí. Um er að ræða stærstu frumsýningarþáttaröð í sögu Paramount+ og önnur þáttaröð er væntanleg.