

Minningartónleikar um söngvarann ástsæla; Björgvin Halldórsson, verða haldnir í Eldborg laugardaginn 28. nóvember. Þar munu börn hans, Svala og Krummi, stíga á svið ásamt einvalaliði söngvara og hljóðfæraleikara og heiðra minningu Björgvins.
„Sumir hverfa fljótt úr heimi hér, skrítið stundum hvernig lífið er. Eftir sitja margar minningar, þakklæti og trú.“

Í tilkynningu frá Senu í dag, á afmælisdegi Ragnheiðar eiginkonu Björgvins, segir að Björgvin Halldórsson var maður sviðs og söngva, goðsögn í íslensku tónlistarlífi. Björgvin gerði tónlistina að ævistarfi og eftir hann liggja margar helstu perlur íslenskrar dægurtónlistar. Sjálfur hafði hann í huga að halda upp á 75 ára afmæli sitt með heiðurstónleikum og var undirbúningur hafinn þegar hann lést skyndilega þann 9. apríl síðastliðinn. Í samráði við fjölskyldu Björgvins var tekin sú ákvörðun að halda áfram með hugmyndir sem þegar voru komnar fram. Eldborg var bókuð og Björgvin var sjálfur búinn að velja mynd í plakatið og langt kominn með val á lögum og söngvurum.
Björgvin hugsaði stórt og verður því allt lagt í sölurnar að gera glæsilega tónleika í minningu hans. Svala Bjōrgvins vinnur nú að endurgerð af laginu Skýið, sem faðir hennar Björgvin samdi árið 1978 og kom út á pötunni Ég skal syngja fyrir þig. Allir Íslendingar þekkja þetta lag og Svala flutti það svo eftirminnilega í jarðarför föður síns. Skýið með Svölu kemur út föstudaginn 12. júní.
Svala og Krummi Björgvinsbörn leiða landslið íslenskra tónlistarmanna á svið Eldborgar og í sameiningu flytja þau okkur tónlistina sem Björgvin gaf okkur síðastliðna áratugi.
Ógleymanlegt kvöld í vændum þar sem Vetrarsól brýst í gegnum Skýið og okkar Eina ósk er að Riddari götunnar og Gullvagninn rati rétta leið. Björgvin, við Syngjum fyrir þig og Þó líði ár og öld mun Minning þín lifa.
Gunnar Helgason sér um leikstjórn og auk Svölu og Krumma munu Ásgeir Trausti, Eyjólfur Kristjánsson, GDRN, Helgi Björnsson, Mugison, Ragnheiður Gröndal, Sigga Beinteins, Sigríður Thorlacius og Stefán Hilmarsson syngja. Sérstakur gestur er Ari Eldjárn. Í bakröddum eru Andrea Ingvarsdóttir, Íris Lind og Kristján Grétarsson. Karlakórinn Fóstbræður stígur einnig á svið.
Hljómsveitina skipa:
Þórir Úlfarsson – Hljómborð, hljómsveitarstjórn, útsetningar
Bjarni Sigurðarson – Gítar
Einar Scheving – Slagverk
Gunnlaugur Briem – Trommur
Jón Elvar Hafsteinsson – Gítar
Ómar Guðjónsson – Pedal Steel
Óttar Sæmundsen – Bassi
Phillip Joseph Doyle – Sax
Tómas Jónsson – Hljómborð