

Í sumar geta börn farið í bráðskemmtilegt lestrarævintýri með Gúnda geithafri. Borgarbókasafnið og Skóla- og frístundasvið hafa tekið höndum saman í samstarfi við starfsfólk skólabókasafna í Reykjavík um dreifingu vegabréfa til allra nemenda í 1.–6. bekk til að taka þátt í ævintýrinu.
Borgarbókasafnið og almenningsbókasöfn um allt land hafa boðið upp á skemmtilega lestraráskorun síðastliðin sumur. Í ár ber áskorunin, eða sumarlesturinn yfirskriftina Gúndi geithafur og grasleitin mikla og hefst hún 20. maí og stendur yfir til 20. ágúst.

Borgarbókasafnið, með fulltingi Skóla- og frístundasviðs, gefur nú í fyrsta sinn öllum börnum í 1.-6. bekk í Reykjavík vegabréf til þess að taka þátt í ævintýrinu með Gúnda geithafri. Vegabréfin verða send út í grunnskóla í Reykjavík á næstu dögum.

Sumarlesturinn virkar þannig að fyrir hverjar 15 mínútur af lestri litar barnið leiðina á ævintýrakortinu innan í vegabréfinu. Þegar barnið hefur náð klukkustund af lestri getur það farið á næsta Borgarbókasafn með vegabréfið, fengið stimpil og happamiða.
Dregið verður úr happamiðum í allt sumar og fyrir uppskeruhátíðina í lok sumars. Heppnir þátttakendur fá vinning. Nánar um viðburðinn á heimasíðu Borgarbókasafnsins.