fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
433Sport

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 13. maí 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Upptaka frá VAR-herberginu í leik West Ham og Arsenal hefur nú verið birt og sýnir nákvæmlega hvernig dómarateymið komst að þeirri niðurstöðu að dæma jöfnunarmark Callum Wilson af.

Arsenal vann leikinn 0-1 en mark Wilson kom boltanum í netið í uppbótartíma en var dæmt af eftir langa skoðun í VAR vegna brots á David Raya í aðdragandanum.

Í upptökunni heyrist VAR-dómarinn Darren England segja snemma í ferlinu að um brot hafi verið að ræða.

„Vinstri höndin heldur handlegg Raya niðri og það hindrar hann í að komast almennilega að boltanum,“ sagði hann, máli sínu til stuðnings.

Aðstoðar-VAR-dómarinn vildi skoða hvort fleiri brot hafi átt sér stað, mögulega af hálfu Arsenal.

„Ef þetta er brot, hvað segjum við þá um Trossard og Rice?“ sagði hann meðal annars.

Að lokum var Chris Kavanagh dómari sendur í skjáinn og komst hann fljótt að niðurstöðu.

„Ég sé greinilegt brot þarna,“ sagði Kavanagh áður en hann dæmdi brot á Pablo og dæmdi markið af.

Yfirmaður dómaramála hjá PGMOL, Howard Webb, sagði eftir birtingu upptökunnar að ákvörðunin hefði verið rétt.

„Var þetta brot á markverðinum? Algjörlega,“ sagði Webb.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Shakira, Katy Perry og Michael Bublé stíga á svið

Shakira, Katy Perry og Michael Bublé stíga á svið
433Sport
Í gær

Sara Björk ræðir lífið í Sádí og segir frá aðstæðum liðsfélaganna – „Kannski að spila fótbolta án þess að fjölskylda þeirra samþykki það“

Sara Björk ræðir lífið í Sádí og segir frá aðstæðum liðsfélaganna – „Kannski að spila fótbolta án þess að fjölskylda þeirra samþykki það“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arsenal og PSG sögð á leið í harða baráttu

Arsenal og PSG sögð á leið í harða baráttu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Olise er leikmaðurinn sem Perez ætlar að kaupa – Tilbúinn að borga 130 milljónir punda

Olise er leikmaðurinn sem Perez ætlar að kaupa – Tilbúinn að borga 130 milljónir punda
433Sport
Fyrir 2 dögum

Pogba tjáir sig um ráðningu United á Carrick

Pogba tjáir sig um ráðningu United á Carrick
433Sport
Fyrir 2 dögum

Enska landsliðið spilar æfingaleik á ömurlegum velli – Grasið var lagt í síðustu viku

Enska landsliðið spilar æfingaleik á ömurlegum velli – Grasið var lagt í síðustu viku