fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
433Sport

Neville segir að svona geti Arsenal unnið PSG í úrslitaleiknum

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 13. maí 2026 09:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gary Neville segir Arsenal þurfa að beita sínum styrkleikum gegn Paris Saint-German í úrslitaleik Meistaradeildarinnar, eigi liðið að eiga möguleika.

Arsenal tryggði sig í úrslitaleikinn með sigri á Atletico Madrid í undanúrslitum á meðan PSG vann Bayern Munchen.

„Augnablikið er með Arsenal í liði. Leikmenn ættu að vera í draumaheimi og ekkert að gera stoppað þá,“ segir Neville.

Hann telur þó að PSG sé með sterkara lið.

„PSG er betra lið en Arsenal núna, það verður að segjast. Þeir hafa sýnt það síðustu tvö tímabil.“

Neville segir Arsenal ekki mega hleypa þessu í opinn leik.

„Í úrslitaleiknum þurfa þeir að hugsa um varnarleikinn sinn og styrkinn. Þeir þurfa að finna leið til að vinna lið sem er betra en þeir á 90 mínútum.“

Úrslitaleikurinn fer fram klukkan 16 þann 30. maí í Búdapest.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Segir frá skilaboðum sem Gabriel sendi honum eftir hið hjartnæma augnablik

Segir frá skilaboðum sem Gabriel sendi honum eftir hið hjartnæma augnablik
433Sport
Í gær

Svakalegur slagur um táning í Svíþjóð – 3,5 milljarða tilboð borist en stórlið íhugar að bjóða enn betur

Svakalegur slagur um táning í Svíþjóð – 3,5 milljarða tilboð borist en stórlið íhugar að bjóða enn betur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Olise er leikmaðurinn sem Perez ætlar að kaupa – Tilbúinn að borga 130 milljónir punda

Olise er leikmaðurinn sem Perez ætlar að kaupa – Tilbúinn að borga 130 milljónir punda
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fullyrt að Aron Einar sé líklega á heimleið í Þorpið

Fullyrt að Aron Einar sé líklega á heimleið í Þorpið