fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fókus

„Stúlkan með gylltu fæturna“ á Met Gala – Aflimuð vegna túrtappa

Fókus
Þriðjudaginn 12. maí 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þema Met Gala í ár var búningalist og það er óhætt að segja að fyrirsætan Lauren Wasser hafi vakið athygli. Wasser klæddist gulllituðum Prabal Gurung-fötum ásamt gylltum gervilimum.

Wasser er 38 ára, en þegar hún var 24 ára voru neðri hlutar fóta hennar aflimaðir eftir að hún fékk eitrunarlost af völdum bakteríusýkingar. Sjúkdómurinn TSS eða toxic shock syndrome er sjaldgæfur og stafar af þeirri hættu að ganga of lengi með eða gleyma að fjarlægja túrtappa. Meðal einkenna eru hár hiti, uppköst, niðurgangur og líðan eins og viðkomandi sé með flensu. Útbrot geta einnig myndast á líkamanum.

Wasser hefur verið afar opinská um nærri banvæna reynslu sína á þrítugsaldri og hefur áður sagt að hún hafi aðeins verið „tíu mínútum frá dauða“.

„Fæturnir á mér voru að verða svartir“

Í þættinum The Diary Of a CEO hlaðvarpinu árið 2023 sagði Wasser: „Ég var á blæðingum. Þær voru rosalega miklar. Ég held að ég hafi misst meðvitund. Þau fundu mig á gólfinu í svefnherberginu mínu. Ég var 10 mínútum frá dauða.“

Líffæri hennar fóru að bila og Wasser var sett í dá. Heilbrigðisstarfsmenn sögðu foreldrum hennar að líkurnar að hún lifði af væru 1%.  „Fæturnir á mér voru að verða svartir svo þegar ég loksins vaknaði þurftu þeir að taka af mér hægri fótinn til að bjarga lífi mínu. Þeir gátu ekki gefið mér nein verkjalyf. Ég fann fyrir öllu sem var gert við mig.“

Í upphafi var aðeins neðri hluti hægri fótar Wasser aflimaður til að bjarga henni frá því að láta undan TSS, en eftir áralanga verki var vinstri fóturinn einnig aflimaður.

Wasser hefur síðan barist fyrir meiri öryggisvernd tíðavara.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Íslenskar konur sakna ævintýradrykksins – „Myndi fremja glæpi til þess að fá Svala aftur“

Íslenskar konur sakna ævintýradrykksins – „Myndi fremja glæpi til þess að fá Svala aftur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Glímir við heilaæxli á meðan sonurinn jafnar sig eftir erfiða aðgerð og eiginmaðurinn heyir kosningabaráttu – „Njótið lífsins og verið þakklát fyrir það sem að þið eigið“

Glímir við heilaæxli á meðan sonurinn jafnar sig eftir erfiða aðgerð og eiginmaðurinn heyir kosningabaráttu – „Njótið lífsins og verið þakklát fyrir það sem að þið eigið“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Dánarorsök Buffy-leikarans opinberuð

Dánarorsök Buffy-leikarans opinberuð
Fókus
Fyrir 6 dögum

Raunveruleikastjarnan tekur erfiða ákvörðun um framtíðina eftir margar misheppnaðar tilraunir

Raunveruleikastjarnan tekur erfiða ákvörðun um framtíðina eftir margar misheppnaðar tilraunir
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Áhyggjufullur og með uppköst í viku“ fyrir viðtal hjónanna við Oprah

„Áhyggjufullur og með uppköst í viku“ fyrir viðtal hjónanna við Oprah
Fókus
Fyrir 1 viku

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“