fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
433Sport

Viðar Örn í agabanni – „Það kom upp innanhússmál“

433
Þriðjudaginn 12. maí 2026 14:54

Viðar Örn Kjartansson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viðar Örn Kjartansson var í agabanni þegar Selfoss mætti Hvíta Riddaranum í 2. deildinni um síðustu helgi og tekur út seinni leikinn í því banni gegn Kormáki/Hvöt á laugardag.

Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Selfoss, staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net í dag, en Viðar Örn gekk í raðir Selfyssinga í vetur.

„Það kom upp innanhússmál sem varð til þess að Viðar var utan hóps í síðasta leik og verður ekki í hóp í næsta leik heldur. Málið var tekið föstum tökum innan félagsins og niðurstaðan fól í sér afleiðingar en á sama tíma stuðning við leikmanninn,“ sagði Óli Stefán við Fótbolta.net.

Hann var spurður út í hvort málið tengdist áfengisvanda sem Viðar opnaði sig um í vetur.

„Ég ætla ekki að fara nánar út í persónuleg málefni leikmanna eða tengja þetta við hluti sem Viðar hefur áður rætt opinberlega. Ég vil þó segja að Viðar Örn hefur komið gríðarlega sterkur inn í okkar hóp, hækkað standard og gefið mikið af sér. Okkar fókus er einfaldlega að halda áfram þeirri vinnu og þeim gildum sem við höfum verið að byggja upp innan hópsins og nýta þau verkfæri m.a. til að styðja okkar leikmenn í gegnum erfiða tíma.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

United í leit að markverði

United í leit að markverði
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Gæti óvænt farið frá Tottenham

Gæti óvænt farið frá Tottenham
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum
Má fara frá Liverpool
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Netverjar reiðir eftir að hafa séð verðið á mat og drykk – Þetta kostar kringla og bjór

Netverjar reiðir eftir að hafa séð verðið á mat og drykk – Þetta kostar kringla og bjór
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

United með tvo kosti sem mögulega vinstri bakverði

United með tvo kosti sem mögulega vinstri bakverði
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Fékk skammir frá mömmu sinni eftir að hafa verið sólbrenndur á myndum

Fékk skammir frá mömmu sinni eftir að hafa verið sólbrenndur á myndum