fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Gylfi blæs á kjaftasögurnar – „Ég vil ekki búa til óvini til að slá pólitískar keilur“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 12. maí 2026 15:30

Gylfi Ólafsson leiðir Í-listann á ný.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar og oddviti Í-listans, blæs á kjaftasögur um að bæjarpólitíkin sé eingöngu stökkpallur fyrir hann inn í landsmálin. Gylfi, sem er í Viðreisn, segist horfa til langrar framtíðar að klára stór mál á Ísafirði.

„Það er gömul og góð hefð að „blása á kjaftasögur“ sem fáir hafa heyrt, gjarnan með þeim einu afleiðingum að magna sögurnar enn frekar upp. Hér kemur ein: bæjarpólitíkin er eingöngu stökkpallur fyrir mig í landsmálin,“ segir Gylfi í færslu á samfélagsmiðlum.

Gylfi hefur tekið sæti sem varaþingmaður á kjörtímabilinu fyrir Viðreisn og leiddi lista flokksins í alþingiskosningum árið 2017. Þá var hann aðstoðarmaður Benedikts Jóhannessonar fjármálaráðherra en náði ekki kjöri á þing.

Gylfi, sem er heilsuhagfræðingur að mennt og var forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, leiddi Í-listans til sigurs í sveitarstjórnarkosningunum árið 2022 og er á ný oddviti listans í ár.

„Frá því ég byrjaði í bæjarpólitík hef ég rekið pólitík samvinnu og samtals. Ég vil ekki búa til óvini til að slá pólitískar keilur, bæði af því að það er óskynsamleg pólitík, en aðallega af því að lífið er skemmtilegra ef við reynum að vera vinir,“ segir Gylfi í færslunni. „Verkefnin sem ég hef áhuga á að koma til leiðar í sveitarfélaginu eru stór og snúast um velsæld og velferð, skemmtilegt líf innan og utan vinnu, náttúruvernd og atvinnu. Við höfum gengið til gagns síðustu fjögur ár. Næstu fjögur ár munu auðvitað ekki duga til að klára öll stóru málin. Kannski væri nær að tala um átta ár, eða þangað til maður er orðinn annaðhvort gamall eða þver, hvort sem kemur á undan.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar