fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fréttir

Halla krefst úrbóta eftir að naumlega tókst að forða stórslysi

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 12. maí 2026 14:30

Halla Gunnarsdóttir formaður VR.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halla Gunnarsdóttir formaður VR hefur birt opinberlega bréf sitt til Reykjavíkurborgar þar sem hún fer fram á úrbætur á umferðaröryggi við Lönguhlíð og raunar víðar í nágrenninu. Lýsir Halla því hvernig litlu máti muna að stórum bíl væri ekið á dóttur hennar, á leikskólaaldri, á meðan hún, Halla sjálf og tvö önnur börn voru á leið yfir götuna á grænu gönguljósi.

Halla segir frá málinu í nokkrum færslum á samfélagsmiðlum.

Í erindi sínu til borgarinnar segir Halla að atvikið hafi átt sér stað um síðustu helgi þegar hún, dóttir hennar og tvö önnur börn hafi verið á leið gangandi yfir Lönguhlíð á umferðarljósunum við Bólstaðarhlíð:

„Hún ýtir á takkann og bíður eftir græna kallinum, bíll á akreininni nær okkur stansar og bílar úr gagnstæðri átt líka. Svo leggjum við af stað, hún örlítið á undan mér á litlu hjóli. Ég horfi svo á bíl koma akandi á akreininni fjær okkur og hann stöðvar ekki. Ég enda með að öskra og henda mér á húddið á bílnum sem þá stansar og dóttir mín rétt sleppur. Ökumaðurinn hafði líklega ekki séð ljósin.“

Halla segir frá því að hún hafi rætt við ökumann bílsins, sem hafi verið kona, en verið í miklu uppnámi. Konan hafi sömuleiðis verið í miklu uppnámi og hún vilji koma þeim skilaboðum til konunnar að í lagi sé með sig og dóttur sína.

Öryggi

Halla segir bílinn hafa verið stóran og hún geti ekki lýst því með orðum hversu hryllilegt það hafi verið að sjá hann stefna í átt að barninu.

Hún segir í erindi sínu til borgarinnar hafa sagt frá atvikinu í íbúahópi hverfisins og þá hafa fengið töluverð viðbrögð og frásagnir hafi komið frá mörgum íbúum sem hafi slæma reynslu af þessum sömu gönguljósum og iðulega aki bílar þarna yfir á rauðu ljósi. Umferðaöryggi sé líka ábótavant á gatnamótum Lönguhlíðar og Flókagötu annars vegar og við Háteigsveg hins vegar, auk þess sem íbúar hafi miklar áhyggjur af öryggi barna við Stakkahlíð.

Halla minnir í erindinu á að hámarkshraði um Lönguhlíð sé 40 kílómetrar á klukkustund en umferð þar sé oft mun hraðari. Tvær akreinar í hvora átt gefi bílstjórum til kynna að þeir geti aukið hraðann og engar hraðahindranir séu á götunni. Svo virðist sem að gönguljósin við Bólstaðarhlíð fari iðulega framhjá ökumönnum. Rétt sé að taka fram að fjöldi barna eigi leið yfir Lönguhlíð á degi hverjum til að sækja skóla eða útivist. Gönguljósin við Bólstaðarhlíð tengi stóran hluta hverfisins við Klambratún og þarna fari fjölmörg börn um.

Krefst Halla þess að lokum að borgin ráðist tafarlaust í úrbætur:

„Ég á erfitt með að hugsa til þess hversu illa hefði getað farið en set hér fram ósk, sem eiginlega er krafa, um tafarlausar úrbætur á umferðaöryggi á þessum ljósum. Það verður að hægja á umferð á þessu svæði og finna leiðir til að tryggja að umferðaljósin þjóni tilgangi sínum. Ég vonast til að heyra fljótlega frá ykkur.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Keyrði á móti rauðu ljósi á Suðurlandsbraut með hryllilegum afleiðingum – Bilaður ljósastaur ekki lagfærður strax eftir slysið

Keyrði á móti rauðu ljósi á Suðurlandsbraut með hryllilegum afleiðingum – Bilaður ljósastaur ekki lagfærður strax eftir slysið
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

„Ofbeldismyndbandi“ Guðmundar Inga eytt í kjölfar gagnrýni og frétta fjölmiðla – „Þetta er verulegur dómgreindarbrestur“

„Ofbeldismyndbandi“ Guðmundar Inga eytt í kjölfar gagnrýni og frétta fjölmiðla – „Þetta er verulegur dómgreindarbrestur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vilja byggja Fossvogsbrú á nóttunni – Lýst yfir áhyggjum af áhrifunum á heilsu íbúa

Vilja byggja Fossvogsbrú á nóttunni – Lýst yfir áhyggjum af áhrifunum á heilsu íbúa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sonur Díönu var skilinn eftir í skólarútunni – Er með sjaldgæfan sjúkdóm sem getur verið hættulegur

Sonur Díönu var skilinn eftir í skólarútunni – Er með sjaldgæfan sjúkdóm sem getur verið hættulegur