

Sai nýtur mikilla vinsælda á TikTok og Instagram, þar sem hún er með 464 þúsund fylgjendur á TikTok og 308 þúsund á Instagram.
Hún birtir aðallega skemmtileg myndbönd frá ferðalögum sínum um heiminn, þar sem hún prófar meðal annars fjölbreyttan mat og gefur ferðamönnum góð ráð.
Balaji hefur ferðast víða, en hún segir verðlag á Íslandi hafa komið sér sérstaklega á óvart.
Í myndbandi sem hún birti á TikTok í gær sést þegar hún fer í verslun Krónuna og ber saman verð við sambærilegar vörur í Kanada. Í yfirskrift myndbandsins segir hún að matvöruverð á Íslandi sé með því hæsta í heiminum.
Í upphafi myndbandsins skoðar hún verð á ýmsum ávöxtum, til dæmis banönum og avókadó, og bendir á að verðið sé ekki endilega hátt í alþjóðlegum samanburði.
Síðar beinir hún sjónum að tilbúnum réttum, þar á meðal tikka masala-örbylgjurétti sem kostar rúma 17 kanadíska dollara. Viðbrögð hennar benda til þess að henni þyki verðið hátt. Hún nefnir einnig pylsur og beikon sem dæmi um vörur sem henni finnst dýrar og lýsir verði á öðrum tilbúnum réttum, til dæmis sushi, sem „brjálæðislegu“.
Balaji tekur þó fram að mjólkurvörur á Íslandi séu í sérflokki hvað varðar gæði, og bendir á að verð á smjöri sé svipað og í Kanada.
Að lokum segir hún að hún skilji að hluta til hvers vegna verðlag á Íslandi sé hátt, þar sem landið er eyja og margar vörur fluttar inn með tilheyrandi kostnaði. „En ég hélt aldrei að ég myndi líta þann dag að Kanada væri ódýrari kostur,“ segir hún.
@tryittoronto The price of bacon makes me wanna cry🥲 #iceland #icelandtravel #travelvlog #canadiantraveller #travelinfluencer ♬ original sound – Sai Balaji