fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fókus

Þessi fimm velja Ungfrú Ísland 2026

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 12:12

Patrekur Jaime, Inga Tinna, Kristinn Óli, Tara Sif og Einar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það styttist í einn glæsilegasta viðburð vorsins þegar úrslit Ungfrú Ísland 2026 fara fram, og í dag var tilkynnt hverjir skipa dómnefndina sem mun gegna lykilhlutverki við val á næsta fulltrúa Íslands á alþjóðlegum vettvangi.

Í dómnefndinni sitja einstaklingar með fjölbreytta reynslu úr atvinnulífi, fjölmiðlum og skapandi greinum:

  •     Patrekur Jaime raunveruleikastjarna og æðibiti
  •     Inga Tinna Sigurðardóttir forstjóri og eigandi Dineout
  •     Einar Bárðarson framkvæmdastjóri SVEIT og almannatengill
  •     Kristinn Óli Hrólfsson hárgreiðslumeistari
  •     Tara Sif Birgisdóttir fasteignasali og dansari

Dómnefndin mun leggja mat á frammistöðu keppenda með áherslu á framkomu, sjálfstraust og samskiptahæfni; þá eiginleika sem skipta sköpum fyrir hlutverk Ungfrú Ísland.

Keppnin fer fram í Gamla Bíó þann 22. apríl næstkomandi og hefst kl. 20:00. Úrslitakvöldið verður í beinni útsendingu á Vísi og gefur landsmönnum tækifæri til að fylgjast með þegar Guðrún Eva Hauksdóttir, Ungfrú Ísland 2025, krýnir arftaka sinn.

Kynnir kvöldsins er Eva Ruza, en hún mun enn og aftur leiða áhorfendur í gegnum kvöldið af sinni alkunnu snilld. Á dagskrá eru einnig kraftmikil tónlistaratriði frá Klöru Einars og Patr!k.

Í tilkynningu segir að Ungfrú Ísland er vettvangur þar sem ungar konur fá tækifæri til að þróa hæfileika sína, styrkja sjálfstraust og undirbúa sig fyrir spennandi verkefni á alþjóðlegum vettvangi  og úrslitakvöldið 2026 lofar sannkölluðu glæsikvöldi.

Fyrir þá sem vilja tryggja sér sæti í salnum er hægt að nálgast miða á tix.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Hvað borgar almenningur fyrir það að Steinunn Ólína fari í starfshæfismat?“

„Hvað borgar almenningur fyrir það að Steinunn Ólína fari í starfshæfismat?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þingmaður Samfylkingarinnar uppskar gull í skemmtiskokki – Sigraði barnunga keppendur

Þingmaður Samfylkingarinnar uppskar gull í skemmtiskokki – Sigraði barnunga keppendur
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prjónaðu besta vin Línu langsokks

Prjónaðu besta vin Línu langsokks
Fókus
Fyrir 6 dögum

Dóra stígur fram: „Ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist“

Dóra stígur fram: „Ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist“