fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
Fókus

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“

Fókus
Þriðjudaginn 21. apríl 2026 08:13

Ingólfur er í viðtali við Frosta Logason. Mynd: Skjáskot Brotkast

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, er í ítarlegu viðtali í Spjallinu með Frosta Logasyni á Brotkasti þar sem hann ræðir meðal annars um þær ásakanir sem bornar voru á hann fyrir nokkrum árum og þær áskoranir sem hann hefur staðið frammi fyrir æ síðan.

Ingó var í fréttum nýlega þegar hann ákvað að aflýsa tónleikum sem fara áttu fram í Sólheimakirkju . Ástæðan var sú að aðilar á vegum Facebook-hópsins Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu settu sig í samband við Sólheima og forsvarsmenn kirkjunnar og þrýstu á að tónleikarnir færu ekki fram.

Sjá einnig: Ingó aflýsir tónleikum:„Komið var í veg fyrir það að þessu sinni“

Ingólfur ræðir þetta og þá útilokunarmenningu sem hann segir ríka í íslensku samfélagi. Einstaklingar sem vogi sér að fara gegn straumnum og gagnrýna hluti sem eiga að vera samþykktir almennt eigi á hættu að vera teknir og jarðaðir.

Ingólfur segir sjálfur að hann hafi ekki verið neinn kórdrengur á sínum yngri árum.

„Ég byrjaði að spila á böllum 17 ára gamall og kunni kannski ekki að höndla frægð og frama,“ segir hann en tekur skýrt fram að hann hafi aldrei níðst á neinum, beitt ofbeldi eða nauðgað.

„Það sem fólk segir stundum er alveg glórulaust og sumt sem mig langar ekki að segja sem er bara það ljótt. Ég var heldur ekki kannski alltaf til fyrirmyndar, var að reyna við stelpur eða með stelpum eftir einhver böll eða svoleiðis,“ segir hann í viðtalinu.

„Já, ég reyndi örugglega við 17 ára stelpu á Flúðum, ég get alveg sagt það, en það var fyrir 21 ári síðan. Það var þegar ég var 19 ára eða tvítugur.“

Ingólfur segir að umræðan snúist enn að því að reyna að koma í veg fyrir að hann komi fram. „Af því að ég er að níðast á unglingsstúlkum eða álíka rugl sem ég þarf að lesa um sjálfan mig. Það er bara glórulaust,“ segir hann.

Ingólfur ræðir einnig um ábyrgð fjölmiðla og rifjar upp að þegar umræða um hans mál voru í hámarki hafi fjölmiðlar mætt í ákveðinn framhaldsskóla og rekið míkrófóninn upp í andlitið á nemendum og spurt þá út í mál hans. Fram hafi komið að það væri bannað að ráða hann og hann myndi aldrei spila á balli í skólanum.

„En ég held ég hafi bara aldrei spilað á balli í þessum skóla. Ég spilaði í Borgarholtsskóla á balli 2007 eða 2008. Ég gerði aldrei nokkrum manni neitt, en ég spilaði á balli þarna og ég var örugglega óviðeigandi. Þá er ég til í að biðjast afsökunar á því. Hvað þýðir það í dag? Ef ég ætla að halda tónleika í einhverri kirkju til styrktar Sólheimum að ég megi ekki koma þar fram af því að ég er svo hræðilegur, af því að ég var óviðeigandi þegar ég var 21 árs að spila á einhverju menntaskólaballi. Þetta er bara orðið algjör steypa allt, ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu,“ segir hann.

Ingólfur rifjar einnig upp nýlegt dæmi og umræðu í kringum það þegar hann var að fara að spila í Skógarböðunum á Akureyri. „Þá fer af stað herinn,“ segir hann og heldur áfram:

„Ég fylgist aðeins með þessu og eitt af því skrýtnasta sem ég sé er að það er kona sem er kennari við Menntaskólann á Akureyri sem skrifar inn: „Er það í lagi að Skógarböðin séu með eitthvað ógeð sem er að níðast á 15 ára stúlkum.“ Hvernig getur það verið? Eru krakkarnir í MA að fara í tíma hjá þessari konu þegar hún er með þessa nálgun og leyfir sér að skrifa þetta á opinberum vettvangi? Í fyrsta lagi um saklaust fólk, fólk sem hefur aldrei gert henni neitt, fólk sem hún þekkir ekki neitt og fólk sem á líka bara börn og fjölskyldu. Þetta er bara nýlegt dæmi,“ segir hann meðal annars í viðtalinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands

Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þessar bækur eru tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar

Þessar bækur eru tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hafdís Björg opnar sig upp á gátt: „Ég var hræddari við kommentakerfið en ofbeldismanneskjuna“

Hafdís Björg opnar sig upp á gátt: „Ég var hræddari við kommentakerfið en ofbeldismanneskjuna“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Frumsýna Broadway söngleikinn Draumur í dós

Frumsýna Broadway söngleikinn Draumur í dós