

Fussumsvei gaf út nýtt lag, „Skattheimtumennirnir“, þann 10. apríl 2026. Lagið er hrátt rokklag og fjallar um mann sem lendir í skuld hjá skattinum, ferðalag hans og uppgjör við þá stöðu sem uppi er. „Skattheimtumennirnir“ var samið á tímabili þar sem hljómsveitin var í mótun og sköpunargleðin í hámarki. Þetta sama ár fyrir síðustu aldamót tók Fussumsvei þátt í músíktilraunum með lagið. Hljóðmynd lagsins sameinar áhrif frá fjörugu kassagítarrokki, þéttum rythma frá bassa og trommum ásamt frumlegu orgelspili og skapar þannig orkumikla upplifun.
Lagið er það fyrsta í röð laga sem verða gefin út núna næstu misseri og eiga það sameiginlegt að mótast af líflegum hljóðfæraleik og frumlegri textagerð.
Fussumsvei voru starfandi í kringum síðustu aldamót og eitthvað með hléum eftir það, og hefur gefið út lög á streymisveitum síðan 2022, eða frá því að sveitin tók til starfa aftur eftir langt hlé. Breiðskífa sveitarinnar, Fussum og sveium, kom svo út í júlí í fyrra. Tónlistin einkennist af fjölbreytileika, með sterkri áherslu á hnittna texta.
Lagið „Skattheimtumennirnir“ er í spilaranum hér fyrir neðan.