fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Guðni minnir á söguna í aðdraganda leiksins stóra – 35 Íslendingar yfirgnæfðu hundrað sinnum fleiri Dani

Fókus
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Annað kvöld mætast Ísland og Danmörk í undanúrslitum Evrópukeppni karla í handbolta. Leikurinn fer fram í Herning í Danmörku og eins og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum hefur Handknattleikssamband Íslands ekki getað útvegað fleiri miða fyrir íslenska áhorfendur á leikinn. Uppselt var á undanúrslitin fyrir mót og allt stefnir því í danskir áhorfendur verði í miklum meirihluta í höllinni. Íslenskir stuðningsmenn hafa kvartað töluvert yfir þessu en Guðni Th. Jóhannesson prófessor í sagnfræði og fyrrverandi forseti Íslands minnir hins vegar á að þegar Ísland vann Danmörku í fyrsta sinn á útivelli, í landsleik í handbolta, hafi einnig verið við mjög ramman reip að draga í stúkunni fyrir íslenska áhorfendur.

Fyrsti sigur Íslands á Danmörku á útivelli vannst í janúar 1979 en Ísland vann 18-15. Guðni rifjar upp leikinn á Facebook og vísar í fréttir Dagblaðsins, annars af forverum DV, frá þessum tíma. Guðni skrifar:

„Fyrsti sigur okkar Íslendinga á móti Dönum í handbolta karla á heimavelli þeirra kom í janúar 1979. Við mættum þeim þá í Randers, „handboldens lykkeby“ eins og heimamenn kölluðu borgina. Sigurinn var sætur, 18-15. Mér er þetta mjög minnisstætt því að pabbi, Jóhannes Sæmundsson, var þá aðstoðarmaður Jóhanns Inga Gunnarssonar landsliðsþjálfara. Eftir því var einnig tekið að í 3500 manna höll voru 35 Íslendingar og yfirgnæfðu þeir einatt dönsku áhorfendurna. Það er allt hægt, áfram Ísland!“

Svipaður munur

Það verður ekki síður við rammari reip að draga en 1979 í stúkunni fyrir íslenska áhordur annað kvöld. Í fréttum Vísis kemur fram að um 14 þúsund Danir verði á leiknum, enda hafi þeir keypt miða á undanúrslitin löngu fyrir mótið, á móti 150 Íslendingum. Höllin í Herning tekur 14.500 áhorfendur á handboltaleikjum. Mögulega eru inni í þessum hópi sem keypti sér miða í Danmörku, fyrir mót, einhver af þeim yfir 10.000 Íslendingum sem búa þar.

Miðað við forsendur Vísir virðist stefna í að eins og 1979 verði um 100 sinnum fleiri danskir áhorfendur  en íslenskir á leiknum annað kvöld. Ef Íslendingarnir gátu yfirgnæft Danina 1979 er þá nokkuð sem segir að þeir sem standa frammi fyrir sams konar áskorun, nú 47 árum síðar, geti ekki leikið það eftir?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís
Fókus
Fyrir 4 dögum

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum