fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Segir hugvíkkandi efni opna svarta boxið innra með okkur – „Þar er sársaukinn, þar eru öll leyndarmálin, þar er líka gullið“

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 25. janúar 2025 11:00

Sara María Júlíudóttir Mynd: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég fékk vígslu að geta notað ibogaine og reikna með að ég geri það einn daginn, ég veit ekki hvenær það verður. Í Mexíkó er ibogaine löglegt og þar eru klíník þar sem fólk fer í ibogaine í nokkra daga og endar á 5-MeO sem við þekkjum sem fþroskaeitur. Það virðist gullna blandan til að koma fólki úr ópíóðafíkn,“

segir Sara María Júlíudóttir, sálarmeðferðarfræðingur með sérþekkingu á hugvíkkandi efnum, sem er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Sara er ein þeirra sem tel­ur að framtíð geðlækn­inga sé fal­in í notk­un hug­víkk­andi efna í formi meðferða og und­ir eft­ir­liti og stjórn fagaðila. Hún hefur sjálf mikla reynslu af slíkum meðferðum en hana langar að sjá Ísland verða leiðandi í rannsóknum á gagnsemi hugvíkkandi efna í geðlækningaskyni. Sara hélt stóra alþjóðlega ráðstefnu um hugvíkkandi efni fyrir tveimur árum, sem þótti gríðarlega vel heppnuð, og nú ætlar hún að endurtaka leikinn í Hörpu í lok febrúar. Þar hafa boðað komu sína mörg af stærstu nöfnum þessara fræða á heimsvísu og ljóst að áhugamenn um hugvíkkandi efni mega alls ekki láta þennan viðburð framhjá sér fara.

Segir Sara að fólk sem hefur verið í alvarlegri fíkn í fjölda ára finni ótrúlegan árangur af slíkri meðferð. Sara segir fólk þurfa að undirbúa sig vel fyrir slíka meðferð og eins að fara ekki aftur í sömu aðstæður og áður að meðferðinni lokinni.

„100% allan daginn,“ svarar Sara aðspurð um hvort slík meðferðarstöð hérlendis myndi skila betri árangri en Vogur og Vík sem SÁÁ rekur.

„Ég tek fram að ég er ekkert að setja út á SÁÁ eða Vog. En það er þessi hugarfarsbreyting sem við erum að leitast við að fólk finni og er verið að leitast við að fólk finni inni á Vogi. En það sem hugvíkkandi efni gera, við erum öll með þetta Pandoras box eða Svarta boxið inni í okkur, sem er yfirleitt ekki hægt að komast að í samtalsmeðferð. Það þarf eitthvað dýpra, eitthvað sterkara til að opna svarta boxið. Þar er sársaukinn, þar eru öll leyndarmálin, þar er líka gullið. Að breyta því sem þú ert búinn að lenda í í gull, ég sé það þannig.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur