fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Fókus

Hvaða frægu fermingardrengir eru þetta?

Fókus
Föstudaginn 1. nóvember 2024 12:11

Fermingarbörnin í FM95Blö.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fréttatilkynning frá FM95Blö:

Það eru komin 14 ár síðan útvarpsþátturinn FM95BLÖ hóf göngu sína. Og þið vitið hvað gerist þegar maður verður fjórtán ára – ferming – og þess vegna verður blásið af öllu partý-afli í fermingarveislu lúðrana laugardaginn 31.maí 2025 – og miðasala hófst kl.9:57 í dag á Tix.is.

FM95Blö halda ekki partý nema þeir séu 100% vissir um að toppa það síðasta – það er boðorð hjá fermingardrengjunum. Þeir lofa því stærstu og flottustu tónleika-sýningu sem Ísland hefur séð; ljós, hljóð og umgjörð verða í sérflokki og ekkert til sparað!

Hinn gríðarlega vinsæli skemmtikraftur Timmy Trumpet mætir í fyrsta sinn til Íslands og ætlar að rífa þakið af Höllinni. Þeir sem hafa séð hann á tónleikum vita hversu mikla orku hann setur í hvert show og allir sammála um að enginn sé betri á sviði en hann. Timmy er einn allra vinsælasti plötusnúður heims með yfir fjóra og hálfa milljón fylgjendur á TikTok, hefur komið fram á Tomorrowland, Lollapalooza og fjölda annarra tónlistarhátíða og lagið hans „Freaks“ er með yfir milljarð streyma! Að upplifa Timmy Trumpet á tónleikum er eitthvað sem enginn má missa af.

AXMO, geggjaða DJ-teymið með yfir 350 milljón streymi á Spotify munu einnig trylla lýðinn.

En það er ekki allt! Þeir fá til liðs við sig súperstjörnur og góða vini – Herra Hnetusmjör, Jóhanna Guðrún, Sverrir Bergmann, Sveppi og lækna systkinin DJ Eva Mey og Doctor Victor, svo þið verðið í öruggum höndum!

Að auki verður tilkynnt um leynigesti þegar nær dregur tónleikunum – mælt er með því að fólk fylgist með á viðburðinum á Facebook.

Ekki missa af skemmtilegustu tónleikum fyrr og síðar í Laugardalshöllinni, 31. maí 2025. Þetta verður stærsta show sem fermingar drengirnir í FM95BLÖ hafa nokkurn tímann haldið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Varpaði ljósi á sturlaða hegðun Diddy: „Ég fæ martraðir út af þessu og átti það til að öskra reglulega upp úr svefni“

Varpaði ljósi á sturlaða hegðun Diddy: „Ég fæ martraðir út af þessu og átti það til að öskra reglulega upp úr svefni“
Fókus
Í gær

Ragnhildur er innflytjandi – „Aldrei fengið yfir sig holskeflu fúkyrða fyrir að hafa ekki aðlagast“

Ragnhildur er innflytjandi – „Aldrei fengið yfir sig holskeflu fúkyrða fyrir að hafa ekki aðlagast“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Mörgæsin viðurkennir að hafa girnst kattarkonuna á tökustað

Mörgæsin viðurkennir að hafa girnst kattarkonuna á tökustað
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er hættur í ClubDub. Ást og friður“

„Ég er hættur í ClubDub. Ást og friður“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Árni Björn klessti á vegg og endaði á sjúkrahúsi

Árni Björn klessti á vegg og endaði á sjúkrahúsi
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Karlar sem taka virkan þátt í umönnun barna eru heilbrigðari, lifa lengur og eru andlega stabílli“

„Karlar sem taka virkan þátt í umönnun barna eru heilbrigðari, lifa lengur og eru andlega stabílli“