fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fókus

Ragnhildur segir okkur eiga að hætta þessum ósið þegar við erum með öðrum

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 6. júní 2025 19:15

Ragga Nagli Mynd: Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga nagli, fjallar í sínum nýjasta pistli á Facebook um þá tilhneigingu flestra okkar að vera stöðugt að gera tvo hluti í einu og hvaða afleiðingar það getur haft.

„Heilinn getur gert tvo hluti í einu.

Þú getur alveg straujað og talað í símann.

Mögulega brennirðu flíkina ef þú færð svakalegar fréttir í tólið.

Því heilinn getur bara einblínt á einn hlut í einu.

Hefurðu prófað að tala við samstarfsfélagann og skrifa tölvupóst á sama tíma.

Áður en þú veist af ertu að skrifa það sem þú ert að segja.

Getur verið hvimleitt ef umræðuefnið er slúður sem ekki má fara lengra.

Það er ástæða fyrir að það er bannað með lögum að senda sms og keyra bifreið.“

Ragga segir að heilinn geti ekki einblínt á samtal við manneskju fyrir framan þig samtímis og þú skoðar skilaboð á símanum, eða skrollar í gegnum instagram.

„Þú getur verið í sama rými og einhver án þess að vera í raun í sama rými þegar síminn sogar upp alla athyglina þína.

Þú heyrir ekki það sem sagt er.

Þú skráir ekki orðin sem fara út í kosmósið.

Þú tengist ekki á dýptina.

Þú nærð ekki innihaldinu til að sýna skilning og samkennd.

Þú ferð af fundinum með aðeins brotabrot af samtalinu og tengingunni í sálinni.“

Mynd: Ragga nagli.

Ragga segir að þessi hegðun gefi þeim sem eru með okkur til kynna að síminn er mikilvægari.

„Þegar þú kíkir stöðugt á símann til að kanna skilaboð og tilkynningar ertu að gefa í skyn að fólkið á skjánum er mikilvægara en viðmælandinn sem situr á móti þér.

Að vera með fólki sem er þræll símans vekur upp óöryggi, lágt sjálfsmat, sjálfsefa, og við upplifum að vera ekki metin að verðleikum.

Djúp tengsl við annað fólk er það sem fóðrar sálina.

Það dúllar við taugakerfið og gerir það heilbrigt og hamingjusamt.

Það losar út vellíðunarhormónin serótónín og óxýtocín og okkur líður vel í laaaaaangan tíma eftir slíka fundi.

Pakkaðu æfóninum og pússaðu rykið af athyglisfrumunum með að vera til staðar í mómentinu.

Þú ert ekki að missa af neinu með að logga út úr netheimum í nokkrar klukkustundir.

Mannskepnunni gekk ágætlega í hundruð þúsundir ára að fúnkera án síma í vasanum.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Skellur fyrir Blake Lively og Taylor Swift – Leikarinn fær að hnýsast í einkaskilaboð þeirra

Skellur fyrir Blake Lively og Taylor Swift – Leikarinn fær að hnýsast í einkaskilaboð þeirra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Samfélagsmiðlastjarnan rokkar í agnarsmáu eldrauðu bikiní

Samfélagsmiðlastjarnan rokkar í agnarsmáu eldrauðu bikiní
Fókus
Fyrir 6 dögum

Slær í gegn á samfélagsmiðlum þar sem hann heilsar holum landsins

Slær í gegn á samfélagsmiðlum þar sem hann heilsar holum landsins
Fókus
Fyrir 6 dögum

Leyfðu Bandaríkin árásinni á Pearl Harbor að eiga sér stað?

Leyfðu Bandaríkin árásinni á Pearl Harbor að eiga sér stað?
Fókus
Fyrir 1 viku

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru
Fókus
Fyrir 1 viku

Færeyingur er með mikilvæga spurningu til Íslendinga

Færeyingur er með mikilvæga spurningu til Íslendinga