fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Hagmæltur Hallgrímur hópsýktur þrátt fyrir að hafa ekki heimsótt Hamborgarafabrikkuna

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 14. júlí 2023 16:00

Hallgrímur Helgason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rithöfundurinn Hallgrímur Helgason segir farir sínar ekki sléttar, en eftir að hafa fengið gesti í mat til sín á mánudaginn er hann einn fjölmargra einstaklinga í hópsmiti tengdu Hamborgarafabrikkunni í Kringlunni, þrátt fyrir að hafa ekki borðað á staðnum sjálfur.

„Fengum unga gesti á mánudag sem höfðu setið á Hamborgarafabrikkunni á laugardag og snætt barnaborgara. Gestirnir ældu aðfararnótt þriðjudags og nú sit ég í súpunni,“ segir Hallgrímur í færslu á Facebook. Kann hann veitingastaðnum litlar þakkir fyrir og segir: „nóttin lét mig sjá lífið í nýju ljósi! Í alvöru, þessi ferðaþjónusta á eftir að drepa okkur.“ 

Hvetur hann fólk til að þvo sér um hendur, ekki spritta og fara varlega.

Húmórinn hefur þó ekki yfirgefið Hallgrím í veikindunum og smellti hann í ljóð:

Á Fabrikkuna fór ég ekki
en fékk þó þaðan gesti.
Nú norpa ég í norðantrekki
Með Nóró þarmabresti.

Yfir 100 tilkynningar um smit

Eins og DV fjallaði um fyrr í vikunni greindu fjölmargir einstaklingar frá því í Facebook-hópnum Matartips að hafa veikst eftir að borða á veitingastaðnum. Fyrirtækið lokaði staðnum og fór í að sótthreinsa staðinn hátt og lágt og henda matvöru. Fyrst var grunur á að um matareitrun væri að ræða, en eftir vettvangsskoðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er vinnutilgáta eftirlitsins að nóróveirusýkingu sé að ræða og því tilfellið flokkað sem hópsýking. Rannsókn er enn í gangi, og hefur ekki verið staðfest að um nóróveirusýkingu sé að ræða, en eftirlitið hefur fengið yfir 100 ábendingar um smit.

Sjá einnig: Loka Fabrikkunni í Kringlunni í dag til að ganga úr skugga um hvort að gestir hafi orðið fyrir matareitrun

Sjá einnig: Grunur um að nóróveira hafi valdið matareitrun á Fabrikkunni – Eigendur lokuðu eftir ábendingar

Í til­kynn­ingu frá Maríu Rún Hafliðadótt­ur, fram­kvæmda­stjóra Ham­borg­arafa­brikk­unn­ar í dag kom fram að Hamborgarafabrikkunni á Höfðatorgi var lokað í dag svo hægt væri að sótthreinsa þar líka. Var ákvörðunin tekið í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Þar segir að at­b­urðir liðinna daga séu stjórn­end­um mikið áfall og er viðskipta­vin­um og starfs­mönn­um þakkað fyr­ir skiln­ing og þol­inmæði. 

Til­kynn­ing Ham­borg­arafa­brikk­unn­ar

„Eins og komið hef­ur fram í frétt­um var Ham­borg­ar­afa­brikk­unni í Kringl­unni lokað tíma­bundið í sam­starfi við heil­brigðis­eft­ir­litið. Var það gert til að gæta fyllsta ör­ygg­is í kjöl­far ábend­inga frá viðskipta­vin­um okk­ar. Í sam­starfi við heilbrigðiseftirlitið var staður­inn skoðaður  og sótt­hreinsaður með ör­yggi viðskipta­vina og starfsmanna í huga.  Fabrikk­an í Kringl­unni hef­ur verið opnuð á ný.  Eig­end­ur Fabrikk­un­ar hafa ákveðið að loka staðnum á Höfðatorgi í dag og ráðast í sömu aðgerðir og var farið í í Kringl­unni með ör­yggi viðskipta­vina og starfs­manna í huga.  

Ham­borg­arafa­brikk­an hef­ur starfað í rúm 13 ár og ávallt lagt áherslu á vönduð vinnu­brögð og gæði mat­ar og þjón­ustu. Það er okk­ur því mikið áfall að upp­lifa at­b­urði af þess­um toga. Við þökk­um viðskipta­vin­um okk­ar og starfs­mönn­um fyr­ir skiln­ing­inn og þol­in­mæðina.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur