fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fókus

Friends atriðið sem Matthew Perry vildi ekki leika í – Taldi að aðdáendur myndu hætta að elska Chandler

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 6. nóvember 2023 16:30

Matthew Perry

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meðleikari Matthew Perry hefur gefið það upp að leikarinn vinsæli lét skrifar burt atriði úr sjónvarpsþáttunum vinsælu Friends. Í þeim þætti átti Chandler Bing, leikinn af Perry, og eiginkona hans, Monica, leikin af Courteney Cox, að eiga í hjónabandserfiðleikum eftir framhjáhald Chandlers. En Perry kvartaði undan atriðinu við handritshöfunda þáttanna. 

Matthew Perry fannst látinn í heitum potti á heimili sínu í Los Angeles laugardaginn 28. Október og er andlát hans vinum hans, samstarfsfólki og aðdáendum um heim allan harmdauði. 

Sjá einnig: Dánarorsök Matthew Perry -Veröldin syrgir vin

Leikkonan Lisa Cash, sem var aukaleikkona í þáttunum, hefur nú gefið það upp að í þættinum The One in Vegas: Part 1, stóð til að láta Chandler halda framhjá Monicu. Cash var ráðin til að leika hótelstarfsmann sem fer með pöntun á herbergi Chandlers eftir hávaðarifrildi hans og Monicu. 

Í samtali við TMZ segir Cash: „Senan var þannig að Chandler og Monica voru að rífast í Vegas eftir að Monica fékk sér hádegismat með fyrrum kærasta sínum, Richard, og í handritinu þá fer Chandler upp á herbergið sitt, pantar sér mat á herbergið og ég fer upp með  sem hann sem hótelstarfsmaðurinn. Við förum síðan að spjalla, hlæja og mynda tengsl sem endar með að Chandler heldur framhjá Monicu með hótelstarfsmanninum sem ég lék.“

Perry leið hins vegar ekki vel með þetta atriði og fór til handritshöfundanna og bað um að atriðinu yrði breytt.

„Við vorum búin að æfa atriðið og daginn áður en átti að taka það upp fyrir framan áhorfendur, var mér sagt að Perry hefði farið til handritshöfundanna og sagt þeim að aðdáendur myndu aldrei fyrirgefa Chandler fyrir að halda framhjá Monicu. Hann hafði örugglega rétt fyrir sér. Þetta atriði hefði alveg breytt stefnu þáttanna.“

Framhjáhaldssenurnar voru því teknar úr handritinu og hlutverk Cash sömuleiðis. Hún fékk þó annað tækifæri, sem flugfreyja í annarri senu ásamt Ross og Rachel. 

Auk þess að hrósa Perry fyrir ákvörðun hans að láta framhjáhaldssenurnar fara út segir Cash að hann hafi tekið vel á móti henni og henni liðið vel á tökustað með honum. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Reglulegt starfsmannasamtal breytti öllu hjá Maren – „Þarna eru öll rauðu flöggin!“

Reglulegt starfsmannasamtal breytti öllu hjá Maren – „Þarna eru öll rauðu flöggin!“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fagnaði 20 ára afmæli Kattarkonunnar fáklædd

Fagnaði 20 ára afmæli Kattarkonunnar fáklædd
Fókus
Fyrir 3 dögum

Stórstjarnan að mestu hætt neyslunni – Eitt getur hann ekki gefið upp á bátinn

Stórstjarnan að mestu hætt neyslunni – Eitt getur hann ekki gefið upp á bátinn
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekkir þú brúðhjónin á þessum myndum? – Ljósmyndara leitað

Þekkir þú brúðhjónin á þessum myndum? – Ljósmyndara leitað
Fókus
Fyrir 4 dögum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum