fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fókus

Veðbankar: Diljá kemst ekki upp úr riðlinum

Fókus
Þriðjudaginn 4. apríl 2023 15:30

Hjúkket að Diljá vann ekki. Það hefði reynst RÚV dýrt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svo gæti farið að Diljá Pétursdóttir sitji eftir í riðlinum á undanúrslitakvöldi Eurovision í Liverpool þann 11. maí næstkomandi.

Sú verður að minnsta kosti raunin ef marka má samantekt Eurovisionworld.com á veðbönkum.

Diljá keppir á seinna undanúrslitakvöldinu og eru margir á því að lag hennar, Power, sé nógu gott til að komast að minnsta kosti áfram á úrslitakvöldið. Ef marka má veðbanka er framlag Íslands aftur á móti í fjórtánda sæti af sextán þátttökuþjóðum á undanúrslitakvöldinu.

Þetta segir þó ekki alla söguna og eru líkurnar á að Diljá komist áfram metnar 40% – sum sé alveg ágætar. San Marínó (19%) og Rúmenía (18%) eru fyrir neðan Ísland en þjóðir á borð við Pólland (48%), Belgíu (55%) og Danmörk (58%) í næstu sætum fyrir ofan okkur.

Líkurnar á að Austurríki fari áfram eru metnar yfir 90 prósent og þá eru líkurnar á að Ástralía, Georgía, Kýpur og Armenía fari áfram metnar yfir 80%.

Diljá er í 24. sæti yfir þá sem taldir eru eiga mestu möguleikana á að vinna keppnina. Þó að líkurnar á að Danmörk, með hinn færeyska Reiley í broddi fylkingar, séu meiri en okkar Íslendinga á undanúrslitakvöldinu er Diljá líklegri til að vinna sjálfa keppnina. Þar er framlag Dana í 28. sæti.

Loreen, fulltrúi Svía, er í langefsta sætinu samkvæmt veðbönkum og eru líkurnar á sigri hennar laugardagskvöldið 13. maí metnar 39%. Þar á eftir koma Finnar með 15% líkur og svo Úkraínumenn, sigurvegarnir frá því í fyrra, með 11% líkur. Norðmenn eru í fjórða sæti og Spánverjar því fimmta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrósa hvort öðru á rauða dreglinum – Sögusagnir um ástarsamband fá byr undir báða vængi

Hrósa hvort öðru á rauða dreglinum – Sögusagnir um ástarsamband fá byr undir báða vængi
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ástæða þess að Justin Bieber fengi helminginn af milljarða samningi eiginkonunnar ef þau skilja

Ástæða þess að Justin Bieber fengi helminginn af milljarða samningi eiginkonunnar ef þau skilja
Fókus
Fyrir 3 dögum

Stórleikarinn óþekkjanlegur við tökur – Deilur á tökustað vegna níðs og nektar

Stórleikarinn óþekkjanlegur við tökur – Deilur á tökustað vegna níðs og nektar
Fókus
Fyrir 3 dögum

Diddy sagður hafa greitt öryggisverði milljónir svo myndbandið færi aldrei í dreifingu

Diddy sagður hafa greitt öryggisverði milljónir svo myndbandið færi aldrei í dreifingu
Fókus
Fyrir 4 dögum

FM95Blö rýfur þögnina – „Þetta eru búnir að vera skrítnir dagar“

FM95Blö rýfur þögnina – „Þetta eru búnir að vera skrítnir dagar“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Bergur veit aldrei hvað vinnudagurinn færir – ,,Þegar fólk hringir á sjúkrabíl er það yfirleitt ekki venjulegur dagur og fólk oft í miklu uppnámi”

Bergur veit aldrei hvað vinnudagurinn færir – ,,Þegar fólk hringir á sjúkrabíl er það yfirleitt ekki venjulegur dagur og fólk oft í miklu uppnámi”