fbpx
Mánudagur 15.júní 2026
Pressan

Póstmaðurinn var myrtur – Var það fortíð hans sem varð honum að bana?

Pressan
Laugardaginn 7. júní 2025 19:00

Frá sviðsetningu lögreglunnar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir rúmlega 22 árum var póstmaðurinn Paul Savage myrtur í Flintshire í Wales. Hann var við vinnu sína og var að bera út póst að morgni til. Hann fannst meðvitundarlaus í snævi þaktri innkeyrslu. Hann var hálfnaður með útburðinn að morgni 4. febrúar 2003 þegar hann var laminn mörgum sinnum í höfuðið af svo miklu afli að höfuðkúpubotninn brotnaði. Árásin virðist hafa gengið svo hratt fyrir sig að enginn tók eftir henni né heyrði. Ef Savage öskraði þá heyrði það enginn nema morðinginn eða morðingjarnir.

Þar var íbúi í húsinu, sem Savage lá við, sem fann hann meðvitundarlausan í innkeyrslunni. Savage var fluttur á sjúkrahús í skyndingu en ekki tókst að bjarga lífi hans.

Vitni sagði síðar að tveir ungir menn í hettupeysum hefðu verið á ferðinni nærri þeim stað þar sem Savage skildi reiðhjól sitt eftir. Þetta var á svipuðum tíma og ráðist var á Savage.

Í upphafi taldi lögreglan að rán hefði farið svona hræðilega úrskeiðis en útilokaði ekki að um tilefnislausa árás hefði verið að ræða.

Varð fortíðin honum að bana?

Fljótlega runnu tvær grímur á lögreglumennina sem unnu að rannsókn málsins. Þegar þeir könnuðu fortíð Savage kom í ljós að hún var ekki alveg flekklaus. Savage var frá Manchester og átti langan sakaferil að baki og hafði sá ferill staðið yfir í um 10 ár.

Hann hafði hlotið níu mánaða fangelsisdóm í október 2001 fyrir vörslu fíkniefna sem hann hugðist selja. Hann hafði þá verið handtekinn með hass að verðmæti einnar milljónar punda. Þegar hann lauk afplánun flutti hann með eiginkonu sinn og fjögurra ára dóttur til Wales og settist að í Gwernaffield. Hann fékk starf sem póstberi.

Lögreglan taldi að fortíð hans gæti hafa komið aftan að honum og hann verið myrtur vegna hennar. Lögreglan bað almenning um upplýsingar vegna morðsins en það skilaði ekki miklum árangri.

Frá sviðsetningunni.

 

 

 

 

 

 

 

Um vorið leit út fyrir að rannsóknin væri loks að bera árangur en þá voru fimm manns handteknir vegna málsins. Þeim var síðar sleppt án ákæru. 100.000 pundum var heitið í verðlaun fyrir upplýsingar sem gætu leitt til þess að málið yrði upplýst en það skilaði heldur engum árangri.

Eftir því sem lögreglan komst lengra í rannsókn málsins komst upp um skipulagða glæpahópa á svæðinu. Þetta leiddi til þess að um haustið voru margir grunaðir fíkniefnasalar handteknir. Þeir voru þó ekki taldir tengjast morðinu.

Í upphafi árs 2018 tilkynnti lögreglan að hún ætlaði að fara aftur yfir gögn málsins til að kanna hvort ný DNA-tækni gæti orðið til þess að nýjar upplýsingar kæmu fram. Þetta skilaði hins vegar ekki árangri og málið er enn óleyst.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Pútín er eins og dýr í gildru og hann mun berjast og er tilbúinn til að drepa.“

„Pútín er eins og dýr í gildru og hann mun berjast og er tilbúinn til að drepa.“
Pressan
Í gær

Ætluðu að fá sér einn bjór – Síðan hringdi mamma og fékk að vita hvað þeir höfðu gert

Ætluðu að fá sér einn bjór – Síðan hringdi mamma og fékk að vita hvað þeir höfðu gert
Pressan
Í gær

„Mér líkaði við hann en hann gat bara fengið fullnægingu við undarlegar aðstæður“

„Mér líkaði við hann en hann gat bara fengið fullnægingu við undarlegar aðstæður“
Pressan
Í gær

Er þetta í lagi? – Mæðgur fækka fötum á OnlyFans

Er þetta í lagi? – Mæðgur fækka fötum á OnlyFans
Pressan
Í gær

Pútín hefur nú þegar verið „afskrifaður“ – Benda á arftaka hans

Pútín hefur nú þegar verið „afskrifaður“ – Benda á arftaka hans
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kosningar um sjálfstæði Alberta vekja gleði MAGA-liða

Kosningar um sjálfstæði Alberta vekja gleði MAGA-liða
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fylltust viðbjóði þegar niðurstaðan var kynnt: „Meiri vernd fyrir þetta skrímsli en hana“

Fylltust viðbjóði þegar niðurstaðan var kynnt: „Meiri vernd fyrir þetta skrímsli en hana“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segir Trump eiga verstu tvö ár ævi sinnar fram undan

Segir Trump eiga verstu tvö ár ævi sinnar fram undan