fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fókus

Eign dagsins – Hátt til lofts í „glæsilegri penthouse íbúð“ á Reykjanesi og heitur pottur á svölunum

Fókus
Þriðjudaginn 24. maí 2022 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er hátt til lofts í eign sem nýlega hefur verið skráð á sölu í Reykjanesbæ. Um er að ræða svokallaða „penthouse“ íbúð á efstu hæð þar sem hægt er að njóta útsýnis frá þrennum svölum.

Í lýsingu fasteignasala segir: „Virkilega glæsileg penthouse íbúð á efstu hæð með frábæru útsýni frá þrennum svölum“

Mikil lofthæð er í íbúðinni en eldhús, borðstofa og stofa eru allt í einu björtu rými. Þaðan er hægt að ganga út á svalir með útsýni yfir bæinn og svo á aðrar með hafútsýni og heitum potti. Eins er hægt að ganga út á svalirnar með heita pottinum beint frá baðherbergi.

Hjónaherbergið er svokölluð „svíta“ með sérsmíðuðum skápum og litlu svölum. Á efri hæð er svo að finna rúmgott aukaherbergi og eins er hægt að breyta sjónvarpsrými í þriðja herbergið.

Með eigninni fylgir stæði í bílastæðahúsi og hefur gönguleið frá bílastæðahúsi að eigninni verið yfirbyggð.

Ekki þarf að örvænta þó eignin sé á efstu hæð þar sem lyfta er í húsinu. Íbúðin er 104 fermetrar að stærð og ásett verð er 94 milljónir.

Frekari upplýsingar má finna á fasteignavef DV en þar má til dæmis finna upplýsingar um ástand eignar, verðsögu og fleira.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends
Fókus
Fyrir 4 dögum

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna
Fókus
Fyrir 5 dögum

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni
Fókus
Fyrir 5 dögum

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“
Fókus
Fyrir 1 viku

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum