

Bandarískur maður hefur verið handtekinn og ákærður fyrir umfangsmikinn þjófnað og smygl á skjaldbökum. Heildarverðmæti þeirra er talið vera hátt í 70 milljónir króna.
Tímaritið People greinir frá þessu.
Maðurinn sem handtekinn var heitir Albert Bazaar og er frá Louisiana fylki. Skjaldbökunum stal hann hins vegar úr náttúrunni í Flórída og smyglaði þeim úr landi. Hann var handtekinn í borginni Phoenix í Arizona.
Um er að ræða 1800 skjaldbökur og heildarverðmæti þeirra talið vera 550 þúsund dollarar. Það er hátt í 70 milljónir króna. Má því reikna með því að hver skjaldbaka kosti að meðaltali hátt í 40 þúsund krónur. Sumar tegundir skjaldbakanna sem Bazaar stal eru í útrýmingarhættu.
Bannað er að ræna villtum dýrum úr náttúrunni og selja þau úr landi. Bazaar er grunaður um að flytja þær til San Francisco og þaðan yfir Kyrrahafið til Tævan. Þar í landi eru skjaldbökur vinsæl gæludýr. Bazaar er einnig ákærður fyrir skjalafals, það er að hann hafi uppdiktað pappíra sem hafi átt að sína að skjaldbökurnar væru ræktaðar í Alabama og Georgíufylkjum.
Verði Bazaar fundinn sekur gæti hann átt allt að 5 ára fangelsisdóm yfir höfði sér sem og sekt allt að 250 þúsund dollurum, eða 31 milljón króna.