fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
Fókus

Nýjasta Hollywood-dramað vekur athygli – Skaut föstum skotum á barnsföður sinn sem kannast ekkert við ásakanirnar

Fókus
Mánudaginn 18. maí 2026 16:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýlega var greint frá því að stjörnuparið Pete Davidson og Elsie Hewitt væru hætt saman, en þau eiga saman fimm mánaða gamla dóttur. Hewitt hefur nú gefið til kynna á samfélagsmiðlum að Davidson hafi ekki verið til staðar fyrir barn þeirra eftir sambandsslitin og sé því Hewitt að ala stúlkuna upp eins síns liðs.

Heimildarmaður segir í samtali við People að parið hafi hætt saman í illu. Hewitt hafi orðið þunguð fljótlega eftir að þau byrjuðu saman og hafi það reynst sambandinu ofviða að verða foreldrar án þess að hafa tekið sér fyrst tíma til að kynnast almennilega. Þau séu nú að reyna að greiða úr samskiptavanda sínum en það sé ekki auðvelt verkefni.

Parið byrjaði saman í mars á síðasta ári og dóttir þeirra fæddist í desember sama ár.

Samskiptavandi þeirra varð opinber um helgina þegar Hewitt birti færslu til að bregðast við myndum sem papparassaljósmyndarar tóku af henni nýlega þar sem hún var frekar tusku- og þreytuleg.

Hún birti myndband á TikTok þar sem hún sagði:

„Já, já, ég veit. Ég er uppgefin. Ókei? Ég hefði átt að punta mig áður en ég fór út úr húsi í gær. Ég hefði mátt vita að þetta myndi gerast. En það er bara ekki eitthvað sem er mér ofarlega í huga núna því ég er með barn sem ég þarf að hugsa um. Og ég þarf líka að vinna til að þéna peninga, og ég er að gera þetta allt ein, sem er erfitt.“

Hewitt greip svo í kaldhæðnina og tilkynnti að hún ætlaði að gera sig heldur betur fína áður en hún færi aftur í göngutúr með dóttur sína, allt til að geðjast papparössunum.

Myndbandið vakti hörð viðbrögð þar sem fylgjendur Hewitt veltu því fyrir sér hvers vegna hún væri að standa í þessu öllu ein. Ætti Davidson ekki að vera henni til halds og trausts?

„Þetta er berskjaldaðasti tíminn í lífi hverrar konu,“ skrifaði einn fylgjandi og vísaði til þess að aðeins eru fimm mánuðir síðan Hewitt kom dóttur sinni í heiminn. Hewitt setti læk við þessa athugasemd og þótti mörgum það staðfesta gruninn um að Davidson hefði hreinlega látið sig hverfa eftir sambandsslitin og að grínistinn væri ekkert að hjálpa barnsmóður sinni. Sama dag birti Hewitt aðra færslu þar sem hún sagðist vera í leit að barnfóstru og eins svaraði hún annarri athugasemd þar sem hún gaf til kynna að Davidson væri ekkert að hjálpa henni fjárhagslega heldur.

Heimildarmaður People segir þó að Hewitt sé ekki að gæta sanngirni í þessum færslum sínum. Davidson sé boðinn og búinn til að aðstoða, bæði í verki sem og fjárhagslega. Heimildarmaðurinn telur að færslur Hewitt eigi frekar rætur að rekja til óvildar hennar í garð barnsföður síns heldur en til raunveruleikans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Ógnvekjandi upplifun Jóns Gnarr á Grænlandi: „Aðeins einu sinni áður upplifað nokkuð í líkingu við þetta“

Ógnvekjandi upplifun Jóns Gnarr á Grænlandi: „Aðeins einu sinni áður upplifað nokkuð í líkingu við þetta“
Fókus
Í gær

Jónas Sen tætir í sig tónleika í Hörpu: „Mest langaði mig til að standa upp og öskra“

Jónas Sen tætir í sig tónleika í Hörpu: „Mest langaði mig til að standa upp og öskra“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Heimsþekkt söngkona hvílir einkennisútlitið og sýnir sitt rétta andlit

Heimsþekkt söngkona hvílir einkennisútlitið og sýnir sitt rétta andlit
Fókus
Fyrir 2 dögum

Læknirinn sem kallaði Friends-leikarann fábjána áfrýjar og segist hafa verið „ekkert annað en dópsali“ 

Læknirinn sem kallaði Friends-leikarann fábjána áfrýjar og segist hafa verið „ekkert annað en dópsali“ 
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu stjörnum prýtt myndband Madonnu – Keilulaga brjóstahaldarar, glitrandi tertur og kokteilar á klúbbnum

Sjáðu stjörnum prýtt myndband Madonnu – Keilulaga brjóstahaldarar, glitrandi tertur og kokteilar á klúbbnum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta eru fimm verstu setningarnar sem hægt er að segja í kynlífinu

Þetta eru fimm verstu setningarnar sem hægt er að segja í kynlífinu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fimm sprengjur úr nýjum heimildarþáttum um ásakanirnar gegn Michael Jackson

Fimm sprengjur úr nýjum heimildarþáttum um ásakanirnar gegn Michael Jackson
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sveinn Andri og Vigdís gift

Sveinn Andri og Vigdís gift