fbpx
Þriðjudagur 26.maí 2026
Fréttir

Fiskikóngurinn hristir hausinn: „Tíu ár er algerlega galið“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 26. maí 2026 07:49

Kristján Berg, oft kenndur við Fiskikónginn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristján Berg Ásgeirsson, eigandi Fiskikóngsins á Sogavegi, segir rúmlega tíu ára baráttu við borgarkerfið loksins lokið eftir að ný og mun stærri verslun fyrirtækisins opnaði um helgina.

Í samtali við Morgunblaðið í dag segir Kristján að hann hafi fyrst sótt um stækkun árið 2013, en leyfi hafi ekki fengist fyrr en vorið 2025. Verslunin hafi stækkað úr 100 fermetrum í 600.

„Ég er að sjálfsögðu þakklátur að hafa fengið að byggja, en ferlið tekur of langan tíma. Tíu ár er algerlega galið,“ segir Kristján.

Hann segir biðina hafa kostað fyrirtækið milljónir króna, meðal annars vegna endurtekinna breytinga á teikningum og umsóknum. Þá lýsir hann einnig furðulegri reynslu þar sem honum hafi verið ráðlagt að teikna veitingastað inn í bygginguna til að fá jákvæðari viðbrögð frá skipulagsyfirvöldum.

Kristján segir þörf á fleiri og stærri fiskverslunum hér á landi og telur markað fyrir þrjár til fimm stórar slíkar verslanir í framtíðinni.

Nánar er rætt við Kristján í Morgunblaðinu í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tómas rýfur þögnina – Dómurinn sé fullur af alvarlegum rangfærslum og ærumeiðingum – „Andemariam Beyene var ekki aðeins sjúklingur minn“

Tómas rýfur þögnina – Dómurinn sé fullur af alvarlegum rangfærslum og ærumeiðingum – „Andemariam Beyene var ekki aðeins sjúklingur minn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Undarlegir svikapóstar sendir út undir nöfnum formanns Rithöfundasambandsins og forseta ASÍ – „Ég er með hálsbólgu vegna barkabólgu“

Undarlegir svikapóstar sendir út undir nöfnum formanns Rithöfundasambandsins og forseta ASÍ – „Ég er með hálsbólgu vegna barkabólgu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Plastbarkamálið: Segir ekkert því til fyrirstöðu að hefja sakamálarannsókn á Tómasi

Plastbarkamálið: Segir ekkert því til fyrirstöðu að hefja sakamálarannsókn á Tómasi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hjúkrunarfræðingurinn Atli lýkur meðferð við berklum í kvöld – „Ég get mætt í vinnuna í næstu viku og smitast aftur“

Hjúkrunarfræðingurinn Atli lýkur meðferð við berklum í kvöld – „Ég get mætt í vinnuna í næstu viku og smitast aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Plastbarkamálið: Getur Tómas starfað áfram sem læknir?

Plastbarkamálið: Getur Tómas starfað áfram sem læknir?
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kynsjúkdómafaraldur í Evrópu – Ísland í vondum málum

Kynsjúkdómafaraldur í Evrópu – Ísland í vondum málum