fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
Fókus

Svona kemurðu í veg fyrir að barnið þitt verði narsissisti

Fókus
Miðvikudaginn 20. maí 2026 06:30

Dr. Shahrzad Jalali.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klínískur sálfræðingur segir mikilvægt að foreldrar setji börnum sínum skýr mörk, hrósi fyrir viðleitni fremur en árangur og kenni þeim samkennd ef þeir vilja draga úr líkum á að börnin þrói með sér sjálfhverfa eða sjálfsdýrkandi hegðun.

Narsissismi lýsir sér þannig að fólk er gjarnan mjög upptekið af sjálfu sér, lítur stórt á sig, þarf stöðuga aðdáun frá öðrum, sýnir hroka og gefur lítið fyrir þarfir annarra.

Í umfjöllun New York Post segir sálfræðingurinn Dr. Shahrzad Jalali að narsissískar tilhneigingar geti mótast snemma í æsku.

Sjá einnig: Ef þú kannast við þessi sjö atriði þá gætir þú verið í sambandi með narsissista

Jalali segir að það sé eðlilegt að ung börn séu sjálfmiðuð á fyrstu árum ævinnar. Vandinn skapist hins vegar ef þau læra aldrei að taka tillit til annarra eða þola höfnun og mótlæti.

„Lítið barn upplifir heiminn náttúrulega út frá sjálfu sér,“ segir hún. „Spurningin er hvort það festist þar.“

Samkvæmt Jalali ættu börn á miðju barnæskuskeiði, 6 til 12 ára um það bil, að geta tekið við neitun, sætt sig við reglur og áttað sig á því að aðrir hafa eigin tilfinningar og þarfir. Ef sú færni þróast ekki geti sjálfhverfa orðið rótgrónari og þróast í óheilbrigð mynstur.

Sjá einnig: Narsissistar geta ekki fundið til með öðru fólki – Þekkir þú slíkar manneskjur?

Þrjú lykilatriði

Jalali nefnir þrjú atriði sem skipta sérstaklega máli í uppeldi barna:

1. Skýr mörk og hlýja þurfa að fara saman

Foreldrar þurfa að setja reglur og halda börnum ábyrgum fyrir hegðun sinni, en á sama tíma sýna þeim skilning og tilfinningalegan stuðning.

Of lítil eða óljós mörk geti skapað tilfinningu hjá barninu að reglur gildi ekki um það. Á móti geti kalt og of strangt uppeldi haft neikvæð áhrif á sjálfsmynd barnsins og aukið óöryggi þess.

2. Hrós fyrir viðleitni fremur en árangur

Jalali segir að börn sem eingöngu fá athygli eða viðurkenningu þegar þau ná árangri geti farið að tengja eigið virði við frammistöðu.

Það geti síðar á lífsleiðinni leitt til ótta við mistök og kallað á stöðuga þörf fyrir viðurkenningu og þess að sjálfsmyndin byggist á því hvernig viðkomandi lítur út í augum annarra.

3. Samkennd þarf að þjálfa

Að mati Jalali læra börn ekki samkennd með fyrirlestrum einum saman heldur með því að upplifa sjálf skilning og hlustun.

Foreldrar geti hjálpað með því að ræða tilfinningar, spyrja börnin hvernig öðrum líði og hvetja þau til að setja sig í spor annarra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Ógnvekjandi upplifun Jóns Gnarr á Grænlandi: „Aðeins einu sinni áður upplifað nokkuð í líkingu við þetta“

Ógnvekjandi upplifun Jóns Gnarr á Grænlandi: „Aðeins einu sinni áður upplifað nokkuð í líkingu við þetta“
Fókus
Í gær

Jónas Sen tætir í sig tónleika í Hörpu: „Mest langaði mig til að standa upp og öskra“

Jónas Sen tætir í sig tónleika í Hörpu: „Mest langaði mig til að standa upp og öskra“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Heimsþekkt söngkona hvílir einkennisútlitið og sýnir sitt rétta andlit

Heimsþekkt söngkona hvílir einkennisútlitið og sýnir sitt rétta andlit
Fókus
Fyrir 2 dögum

Læknirinn sem kallaði Friends-leikarann fábjána áfrýjar og segist hafa verið „ekkert annað en dópsali“ 

Læknirinn sem kallaði Friends-leikarann fábjána áfrýjar og segist hafa verið „ekkert annað en dópsali“ 
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu stjörnum prýtt myndband Madonnu – Keilulaga brjóstahaldarar, glitrandi tertur og kokteilar á klúbbnum

Sjáðu stjörnum prýtt myndband Madonnu – Keilulaga brjóstahaldarar, glitrandi tertur og kokteilar á klúbbnum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta eru fimm verstu setningarnar sem hægt er að segja í kynlífinu

Þetta eru fimm verstu setningarnar sem hægt er að segja í kynlífinu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fimm sprengjur úr nýjum heimildarþáttum um ásakanirnar gegn Michael Jackson

Fimm sprengjur úr nýjum heimildarþáttum um ásakanirnar gegn Michael Jackson
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sveinn Andri og Vigdís gift

Sveinn Andri og Vigdís gift