fbpx
Þriðjudagur 16.júní 2026
Fókus

Áhrifavaldur og faðir hennar grunuð um að brugga ískyggileg launráð

Fókus
Miðvikudaginn 20. maí 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Instagram-áhrifavaldurinn Gabbie Gonzales var handtekin í Los Angeles á mánudaginn en hún og faðir hennar eru sökuð um að hafa bruggað launráð gegn barnsföður áhrifavaldsins.

Gonzales hefur gert garðinn frægan á Instagram þar sem hún birtir lífsstílsefni en hún er með um hálfa milljón fylgjenda á miðlinum. Samkvæmt TMZ verður Gonzales ákærð fyrir samsæri um morð en faðir hennar, Francisco Gonzales, hefur einnig verið handtekinn. Gabbie átti í forsjárdeilu við barnsföður sinn, söngvarann Jack Avery úr strákasveitinni Why Don’t We. Parið byrjaði saman árið 2018 en leiðir skildu um ári síðar eftir að dóttir þeirra, Lavander, kom í heiminn. Samkvæmt frásögn vitnis í málinu mun Franscisco hafa blandað sér í forsjárdeiluna og útskýrt fyrir dóttur sinni að allt yrði auðveldara ef Jack væri dáinn.

Lögregla hefur rannsakað málið í töluverðan tíma. Jack Averu mætti í viðtal í september þar sem hann greindi frá því að alríkislögreglan, FBI, hefði komið heim til hans og tilkynnt honum að einhver vildi hann dauðan. Jack virðist ekki hafa vitað á þeim tíma að þessi einhver væri í raun barnsmóðir hans, því í sama viðtali hrósaði hann Gabbie fyrir að vera frábær móðir.

Allt mun þetta eiga rætur að rekja til Francisco sem var staðráðinn í að tryggja dóttur sinni forsjá Lavander. Lagði hann meðal annars til að feðginin myndu ráða einkaspæjara til að ná myndum af Jack að gera hluti á borð við að reykja eða drekka sem mætti nota gegn honum í forsjárdeilunni. Síðan kom hann með öfgafyllri hugmyndir. Þau gætu borgað skuggalegum manni og fengið hann til að hóta Jack svo hann hætti að berjast fyrir forsjá stúlkunnar. Loks hafi Francisco ákveðið að best væri hreinlega að ráða Jack af dögum. Lögreglan komst á snoðir um ráðabruggið og til hvaða leigumorðingja Francisco ætlaði að leita. Þegar Francisco taldi sig hringja í leigumorðingja var hann í raun að ræða við leynilögregluþjón, en í símtalinu kom skýrt fram að Francesco var að leita að leigumorðingja.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Var þetta ekki Shakira? Samsæriskenningar á flugi eftir opnunarhátíð HM

Var þetta ekki Shakira? Samsæriskenningar á flugi eftir opnunarhátíð HM
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sigurvegari Mónakó-kappakstursins gerir grín að Kardashian fyrir að stela handklæði hans

Sigurvegari Mónakó-kappakstursins gerir grín að Kardashian fyrir að stela handklæði hans
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vinsælt lag Sigurðar varð loks til þegar hann hitti Braga Valdimar: „Þá auðvitað datt þetta bara þar á einhverju korteri. Óþolandi“

Vinsælt lag Sigurðar varð loks til þegar hann hitti Braga Valdimar: „Þá auðvitað datt þetta bara þar á einhverju korteri. Óþolandi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Frambjóðandi svarar fyrir sig eftir rætið grín frá spjallþáttastjórnandanum – „Ég á ekkert eftir“

Frambjóðandi svarar fyrir sig eftir rætið grín frá spjallþáttastjórnandanum – „Ég á ekkert eftir“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Ógnvekjandi upplifun Jóns Gnarr á Grænlandi: „Aðeins einu sinni áður upplifað nokkuð í líkingu við þetta“

Ógnvekjandi upplifun Jóns Gnarr á Grænlandi: „Aðeins einu sinni áður upplifað nokkuð í líkingu við þetta“